Frjáls verslun - 01.05.2015, Blaðsíða 194
194 FRJÁLS VERSLUN 5 tbl. 2015
gegnt embætti ráðherra
Auður Auðuns var fyrsta konan til að verða ráðherra. Alls hafa
26 konur gegnt ráðherraembættum. Alls hefur 71 kona tekið sæti á
Alþingi frá 1922. Aðeins 12 konur settust á þing á árabilinu 1922-
1983. Fimmtán konur fengu nýlega viðurkenningu Jafnréttisráðs
fyrir að verða fyrstar til að verða forsetar Alþingis, ráðherrar
ýmissa ráðuneyta og formenn þingflokka einstakra flokka.
TexTi: BJörn viGnir SiGurPálSSon
26 konur
Þ ær núlifandi konur sem fyrst gegndu embættum forseta Alþingis, ráðherra og þingflokks
formanna fengu viðurkenningu
Jafnréttisráðs í apríl síðastliðn
um. Ráðið ákvað einróma að í
tilefni af 100 ára afmæli kosn
ingaréttar kvenna skyldi heiðra
konur sem hafa rutt brautina eða
brotið hið svokallaða glerþak
fyrir aukið kynjajafnrétti á þess
um vettvangi stjórnmálanna. Á
þessu mikla afmælisári þótti vel
við hæfi að veita stjórnmálakon
um viðurkenningu Jafnréttis
ráðs og nýta þannig tímamótin
til að vekja athygli á mikilvægi
jafnrar þátttöku kvenna og karla í
stjórnmálum og í okkar lýðræðis
samfélagi.
„Í þjóðfélagi sem kennir sig við
réttlæti, jafnrétti og lýðræði ættu
konur og karlar að sjálfsögðu
að ráða málum í sameiningu
á opinberum vettvangi,“ sagði
Eygló Harðardóttir, félags og
húsnæðismálaráðherra, þegar
hún afhenti viðurkenningarnar.
auður auðuns fyrsti
KvenrÁð herrann
Í máli Eyglóar kom fram að frá
árinu 1922 hefur 71 kona tekið
sæti á Alþingi og að þegar þing
ferlar þessara kvenna hafi verið
skoðaðir í því augnamiði að
komast að því hvaða konur urðu
fyrstar til að gegna umræddum
embættum hafi komið í ljós að
þær eru 16 talsins.
Það væru þær 15 sem væru
heiðraðar þennan dag og Auður
Auðuns sem var alþingismaður
Reykvíkinga fyrir Sjálfstæðisflokk
inn frá 19591970, fyrsta konan til
að gegna embætti borgarstjóra
höfuðborgarinnar 19591960
og fyrst kvenna til að taka sæti
í ríkisstjórn Íslands en hún var
dóms og kirkjumálaráðherra frá
1970 til 1971.
„Við heiðrum minningu Auðar
hér í dag og einnig þeirrar konu
sem fyrst kvenna tók sæti á
Alþingi, Ingibjargar H. Bjarna
son, sem var þingmaður fyrir
Kvennalista eldri, Íhaldsflokkinn
og Sjálfstæðisflokkinn frá 1922
1930,“ sagði Eygló við þetta
tækifæri.
„Núna, hundrað árum síðar,
eru konur um 40% þingmanna
en hlutfall kvenna hefur hæst
verið 43% eftir kosningarnar
2009. Áður hafði hlutfall kvenna
farið hæst eftir kosningarnar
1999 eða í 35%. Enn hallar á
konur á opinberum vettvangi
og við eigum að nýta tímamótin
til framfara á sviði jafnréttis
mála og til að rifja upp og skrá
sögu baráttunnar fyrir auknum
borgara legum og stjórnmála
legum réttindum kvenna.“
Eygló sagði einnig við
þetta tækifæri að svo virtist sem
Alþingi Íslendinga og ís lenskir
stjórnmálaflokkar hefðu að
mest um hluta hafnað starfs kröft
um kvenna til ársins 1983. „Í
rúmlega 60 ár eða frá 1922
1983 tóku aðeins 12 konur sæti
á Alþingi, fjórar þeirra eru með
okkur hér í dag; Ragnhildur
Helgadóttir, Guðrún Helgadótt
ir, Jóhanna Sigurðardóttir og
Salome Þorkelsdóttir.
Á níunda áratugnum varð hin
eiginlega bylting hvað varðar
stjórnmálaþátttöku kvenna þegar
íslenskar konur buðu í þriðja
skipti fram í nafni Kvennalista –
nú til Alþingis – og hlutfall þeirra
fór í fyrsta skipti yfir 10%, löngu
síðar en konur annars staðar
á Norðurlöndunum náðu þeim
sama áfanga,“ sagði Eygló.
Svo virðist sem Alþingi
Íslendinga og íslenskir
stjórnmálaflokkar hafi að
mestum hluta hafnað starfs
kröftum kvenna til ársins
1983. Í rúmlega 60 ár eða
frá 19221983 tóku aðeins
12 konur sæti á Alþingi.
Auður Auðuns var fyrsta konan
til að verða ráðherra.