Frjáls verslun - 01.05.2015, Page 148
148 FRJÁLS VERSLUN 5 tbl. 2015
Texti: Hrund Hauksdóttir / Myndir: Guðmundur Höskuldsson, starfsmaður AlcoaFjarðaáls.
Kvenréttindadeginum fagnað í Alcoa-Fjarðaáli
Alcoa-Fjarðaál
Frá því álver Fjarðaáls tók til starfa hefur konum á austurlandi verið boðið í síðdegiskaffi hinn
19. júní til þess að fagna afmæli kosningaréttar kvenna. Að meðaltali hafa um tvö hundruð konur
mætt, þegið veitingar, hlustað á ræður og notið góðrar tónlistar. Þar sem nú eru liðin 100 ár síðan íslenskar
konur fengu kosningarétt var kvennaboðið í ár sérstaklega veglegt, og í tengslum við það var bæði kynning á
átaki uN-Women og opnun ljósmyndasýningar sem nefnist konur í álveri.
K
arlar styðja konur
(HeForShe). Í
þetta skipti hófust
hátíðahöldin strax í
hádeginu þegar hrint var úr vör
HeForSheátaki UNWomen
enda er það afar viðeigandi á
vinnustað þar sem meirihluti
starfsmanna er karlmenn.
Átakið gengur út á að karlar
taki afstöðu með jafnrétti kynj
anna og lýsi því yfir að þeir
séu reiðubúnir að leggja sitt
af mörkum í þessari baráttu
og sýna það með því að skrifa
undir viljayfirlýsingu á vefnum.
Magnús Orri Schram, stjórn
ar maður í UNWomen á
Íslandi, mætti fyrir hönd sam
takanna og greindi frá átak inu
og mikilvægi þess. Þá flutti
einn ig Magnús Þór Ás mund
son, forstjóri AlcoaFjarða áls,
erindi og sagði frá því hvers
vegna jafnrétti væri hon um
mikilvægt, og það gerðu einnig
þrír aðrir karlar sem starfa
hjá Fjarðaáli og sitja í jafn
réttis nefnd fyrirtækisins. Það
var ánægjulegt að sjá strax
afrakst urinn en fjöldi karla
staldraði við til að skrifa undir
vilja yfirlýsinguna. Haldið verð
ur áfram á næstunni að vekja
athygli á átakinu innan húss hjá
Fjarða áli svo það nái eyrum
sem flestra starfsmanna. Konur
fagna 100 ára afmæli Kvenna
boðið tók við síðar um daginn
en þá hittust um tvö hundruð
austfirskar konur í matsal
Fjarða áls og áttu skemmti lega
stund saman. Guðrún Haf
steinsdóttir, for maður Sam
taka iðnaðarins, flutti ávarp og
talaði þar um það sem áunnist
hefði í jafn réttis bar áttunni en
minnti einnig á að enn væri
nokkuð í land og vísaði til
dæmis til bágrar stöðu kvenna
á forstjórastóli ís lenskra
fyrirtækja. Þá talaði hún einnig
um mikilvægi sterkra kven
fyrirmynda og minnt ist þar
sérstaklega á Vigdísi Finn
bogadóttur, fyrr verandi forseta
Íslands. Björk Jakobs dóttir,
leikkona og skemmti kraftur, sá
um veislu stjórn og að skemmta
gestum. Það fór ekki á milli
mála að Björk vakti stormandi
lukku með ýms um sögum af
eigin óförum og því hvernig
það er að vakna skyndilega
upp einn daginn sem miðaldra
kona.
Söngvari og ljósmyndari úr
starfsmannahópnum Alcoa
Fjarðaál býr svo vel að eiga
sína eigin Idolstjörnu sem er
Hrafna Hanna Herberts dóttir
frá Nes kaup stað en hún starfar
í kerskál anum. Hún steig á
pall í kvennaboðinu og flutti
þrjú lög sem þekktar konur
hafa sungið. Um undirleikinn
Rúmlega tvö hundruð konur sóttu Fjarðaál heim og þáðu góðar veitingar.