Frjáls verslun - 01.05.2015, Síða 154
154 FRJÁLS VERSLUN 5 tbl. 2015
Texti: Hrund Hauksdóttir / Myndir: Geir Ólafsson
Við eigum sterkar fyrirmyndir
LOCAL lögmenn
loCal lögmenn bjóða upp á sérhæfða lögmannsþjónustu með áherslu á lögfræði á sviði félaga-, viðskipta-
og skattaréttar ásamt því að veita viðskiptavinum sínum alla almenna þjónustu lögmanna
F
rjáls verslun spurði
Auði Ýr Helgadóttur
hvaða konur hún telji
hafa haft mest áhrif í
íslensku samfélagi undanfarin
20 ár: „Upp í hugann kemur
fyrst Vigdís Finnbogadóttir.
Hún hefur verið íslenskum
kon um og þjóðinni mikilvæg
fyrir mynd og hefur án nokkurs
vafa haft mikil áhrif á þróun
jafnréttis mála á Íslandi. Einnig
Guðrún Erlendsdóttir sem tók
sæti sem dómari í Hæstarétti
fyrst kvenna. Margar aðrar
sterkar konur eru mér minnis
stæðar sem hafa sýnt frum kvæði
með því að stíga inn á ný svið og
eiga með því þátt í að setja ný
viðmið samfélaginu til heilla.“
samvinna kynjanna
nauðsynleg
Telur þú að konur hafi raun
verulega jafnan rétt og karlar
til starfsþróunar og starfs
frama innan fyrirtækja?
„Já, ég tel að konur hafi jafn
an rétt til starfsþróunar og
starfsframa. Það eru hins vegar
óáþreifanlegir þættir til staðar
sem gætu verið hamlandi en
ég tel að eftir því sem konum
í stjórnendastöðum fjölgar
verði leiðin sífellt greiðari fyrir
aðrar konur sem vilja sækja
fram. Fjölgun kvenna í stjórn
unarstöðum er jafnframt hvetj
andi fyrir aðrar konur sem
sækja þá frekar fram en ella.
Við eigum sterkar fyrirmyndir,
konur sem ég nefndi áðan sem
ruddu brautina. Við þurfum
vissu lega að halda baráttunni
áfram en ég tel og ég held að
flestir átti sig á í dag að jafn
réttismál varða bæði konur og
karla. Samvinna kynjanna er
því nauðsynleg forsenda þess
að sá árangur sem við sækjumst
eftir náist í baráttunni.“
Flutningar og fleiri
starfsmenn
Hvaða árangur ert þú ánægð
ust með innan fyrirtækis þíns á
undanförnum árum?
„Á undanförnum árum höfum
við hjá LOCAL lögmönnum
unnið markvisst að því að
byggja upp sterkt og traust
fyrir tæki. Það eru tiltekin verk
efni á undanförnum miss erum
sem standa upp úr enda eru
þau til marks um trú fjárfesta
á ís lenskum fyrir tækjum og að
íslenskt atvinnulíf er að taka
við sér eftir ládeyðu síð ustu ára.
Þar má t.d. nefna að á síðasta
ári unnum við að því, sem þá
var með stærstu fjár festingum
erlendra aðila í íslensku fyrirtæki
frá því fyrir hrun, þegar sænskir
fjár festar keyptu Advania. Um
mjög mikilvæga fjárfestingu í
íslensku atvinnufyrirtæki var
að ræða sem ánægjulegt var
að koma að, en við stýrðum
ferlinu frá upphafi. Síðan má
nefna að LOCAL lögmenn
bæði stækkuðu og fluttu á
þessu ári. Það bættist nýlega
í starfs mannahópinn og við
flutt um starfsemi okkar í nýtt
og glæsilegt húsnæði á 8. hæð í
Húsi versl unarinnar og þá bætt
ust nýir meðeigendur í okkar
góða eigendahóp. Eigendur
LOCAL lögmannastofunnar
eru fimm konur sem allar hafa
víðtæka þekkingu og reynslu
af lögfræðilegri ráðgjöf í þágu
fyrirtækja, fjármálafyrirtækja,
fjárfesta og annarra þátt tak enda
í viðskiptalífinu. Við tók um
því stórt skref að stíga fram í
fram línuna og kannski höfum
við með því brotið einhverja
múra og vonandi orðið öðrum
hvatning eða fyrirmynd.“
afnám haftanna gleðiefni
Ertu bjartsýn á stöðuna í ís
lensku atvinnulífi næstu sex
mánuðina?
„Ég tel fulla ástæðu til bjartsýni
á íslenskt atvinnulíf. LOCAL
lögmenn eru í mjög nánum
tengsl um við atvinnulífið vegna
starfa okkar fyrir fyrirtæki og
sjóði. Vinna okkar hefur tölu
vert falist í ráðgjöf í tengsl um
við gjaldeyrishöftin og því
fögn um við þeim skrefum sem
nú hafa verið tekin í þá átt að
af nema höftin.“
„Við þurfum vissu lega að
halda baráttunni áfram en
ég tel og ég held að flestir
átti sig á í dag að jafn
réttismál varða bæði konur
og karla.“
Guðrún Bergsteinsdóttir, Áslaug Gunnlaugsdóttir, Auður ýr Helgadóttir, María Júlía Rúnarsdóttir
og Hildur Sólveig Pétursdóttir