Frjáls verslun - 01.05.2015, Page 162
162 FRJÁLS VERSLUN 5 tbl. 2015
Texti: Svava Jónsdóttir Myndir: Aðsendar
Margfalt verðlaunahótel
ION Luxury Adventure Hotel
Konur gegna meirihluta yfirmannsstarfa á ion Luxury Adventure Hotel á nesjavöllum.
Hótelið hefur vakið verðskuldaða athygli frá því það var opnað fyrir tveimur árum og
sópað til sín á annan tug alþjóðlegra verðlauna.
ION Luxury Adven ture Hotel
á Nesja völlum var opnað í
febrúar 2013. Umhverfisvænar
lausnir og hugvitssamleg nýt
ing á náttúrulegum efnum eru
grundvallarþættir í hönnun
og byggingu hótelsins og upp
lifa gestir sterka tengingu við
náttúruna, orkuna á svæð inu
og tærleikann í um hverfinu.
Stefnan er að ION verði besta
og eftirsóttasta „Adventure &
Design“hótel á Íslandi.
Hvað gildin varðar þá eru
þau m.a. afslöppun og fágun.
Lögð er áhersla á norræna
matargerð á veitingastað
hótelsins, Silfru, sem landsliðs
matreiðslumennirnir Hrafnkell
Sigríðarson og Sigurður Lauf
dal stjórna. Þá geta gestir notið
einstaks útsýnis yfir fjalla hring
inn og Þingvallavatn á Norður
ljósabar hótelsins auk þess að
horfa á norðurljósin á veturna.
Gestir geta látið þreyt una
líða úr sér á spaað stöð unni á
hótelinu – í spa með ferð með
lífrænum vör um og í tíu metra
langri náttúru legri setlaug sem
er fyrir utan hótelið.
Hótelið hefur sópað til sín á
annan tug alþjóðlegra verð
launa og má þar nefna:
Architecture A+ Awards –
Hotel & Resort Winner.
World Boutique Hotel
Awards 2014 – Europe’s Best
Honeymoon Boutique Hotel.
LE Miami Awards – Sexiest
Design.
Hip Awards – Hospitality.
Best of Year Awards – BOY,
Green Design.
Global Travel Experience
Awards – Most unusual
Experience – WOW.
Hospitality Design Awards –
Sustainable Project.
Hospitality Design Awards –
Nightclub, Bar or Lounge.
„Ég er mjög stolt af öllum
þeim viðurkenningum og verð
launum sem við höfum fengið
og verið tilnefnd til,“ segir
Katrín Ósk Sigurgeirsdóttir
hótelstjóri. „Það gefur manni
staðfestingu á því að sú upp
bygg ing sem við vinnum að
skilar sér út á við.“
Stjórnendur hjá ion Luxury Adventure Hotel. Frá vinstri: Brennda Mattos móttökustjóri, ylfa Sigþrúðardóttir veitingastjóri, Katrín Ósk
Sigurgeirsdóttir hótelstýra, Kristín Magnúsdóttir fjármálastjóri og Sigurlaug Sverrisdóttir, eigandi og framkvæmdastjóri.