Frjáls verslun - 01.05.2015, Page 165
FRJÁLS VERSLUN 5 tbl. 2015 165
H
ekla Guð munds
dóttir hafði unnið
sem mynd listar
maður um árabil
þegar hún fór árið 1996 að
framleiða tækifæriskort með
myndum af málverkum sínum.
Hún byrjaði smátt en í dag
hafa verið framleiddar yfir 300
tegundir sem hafa prýtt marga
gjöfina í gegnum árin. Hún kom
árið 2008 með fyrstu íslensku
servíettuna sem var með lopa
peysumynstri en sem fyrr eru
það málverk hennar sem eru í
aðalhlutverki á vörum hennar.
„Salan á servíettunum gekk
vel og við fengum ótrúlega
góðar viðtökur; í framhaldinu
hófst framleiðsla á kertum og
fyrirtækið óx enn meira. Nú er
svo komið að við verðum að
stækka við okkur húsnæðið á
næstu misserum.“
Í dag hafa verið framleiddar
35 tegundir af servíettum, 25
tegundir af kertum og eld
spýtu stokkar í stíl ásamt fleiri
fylgi hlutum innan hverrar línu.
„Okkur telst til að í ár muni
koma yfir 80.000 stykki í hús.“
Textílvörur eru nýjungin hjá
Heklaíslandi í dag og má þar
nefna glæsilega nýja línu með
myndum af lóu og krumma
sem inniheldur viskustykki og
svuntur og nýlega komu í hús
ofn hanskar, pottaleppar og
löberar.
„Lögð er áhersla á að fram
leiða gæðavörur með mikilli
breidd þannig að bæði verð og
úrval sé fyrir alla.“
Sífellt er unnið að frekari
vöruþróun og er m.a. von á
þjóðlegum handklæðum frá
Heklaíslandi og nýjum gerðum
af púðum þar sem málverk
Heklu fá að njóta sín.
Hekla ólst upp á Laugalandi í
Holtum og hefur náttúran ávallt
haft áhrif á málverkin sem og
hönnun hennar þar sem kindin,
lóan, hrafninn og stundum
hesturinn eru í aðal hlutverki.
selur erlendis
Vörur frá Heklaíslandi fást
í helstu hönnunar og gjafa
vöruverslunum á landinu.
„Í dag höfum við ekki
mikið svigrúm til að fjölga
útsölu stöðum hér á landi,“
segir Hekla en auk hennar
vinna tveir fastir starfsmenn
hjá fyrirtækinu, Anna Ólöf
Sveinbjörnsdóttir fram kvæmda
stjóri og Kolbrún Vil helms
dóttir, auk nokkurra verk taka
sem sjá um ákveðin verkefni.
„Við þurfum að horfa aðeins
lengra til að stækka fyrirtækið;
það tekur tíma og við hugsum
þetta svolítið sem langhlaup
en stefnan er nú sett meira út
fyrir landsteinana.“
Hekla fór í fyrra á sýninguna
Maison Object í París, sem er
ein stærsta vöru og hönnunar
sýning í Evrópu, og vöktu vörur
frá Heklaíslandi athygli. Nú
þegar eru þær seldar í nokkrum
löndum – s.s. í Noregi, Frakk
landi, Panama og Færeyj um.
Bandaríkin og Kanada eru að
fara að bætast í hópinn.
Hvað varðar markmið
fyrir tækisins segir Hekla að
upphaflega hafi það falist í að
geta unnið við það sem ætti
best við sig og fá útrás fyrir
listræna þörf og hanna vörur
með íslensku/ norrænu ívafi.
„Allt á þetta við í dag. Það
sem hefur bæst við er að nú
er markvisst stefnt út fyrir
land steinana jafnframt því
að fjölga vörutegundum og
sinna okkar dyggu íslensku
við skiptavinum. Umfram allt
finnst okkur við vera á góðri
leið og erum einstaklega bjart
sýnar á framtíðina.“
Í dag hafa verið framleidd
ar 35 tegundir af servíett
um, 25 tegundir af kertum
og eld spýtu stokkar í stíl
ásamt fleiri fylgi hlutum
innan hverrar línu. „Okkur
telst til að í ár muni koma
yfir 80.000 stykki í hús.“
Hekla Guðmundsdóttir. „Við þurfum
að horfa aðeins lengra til að stækka
fyrirtækið; það tekur tíma og við
hugsum þetta svolítið sem langhlaup
en stefnan er nú sett meira út fyrir
landsteinana.“