Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2015, Page 221

Frjáls verslun - 01.05.2015, Page 221
FRJÁLS VERSLUN 5 tbl. 2015 221 skýrslu má sjá að óleiðréttur launamunur á almennum vinnu­ markaði er heldur minni en hann var um aldamótin síðustu en þá var hann 32,4% en 18,0% árið 2014. Þannig má ef til vill segja að ástandið hafi batnað en sé eigi að síður ekki gott. Ef litið er á tölur frá Hagstofu Íslands og skoðaður launamun­ ur kynjanna árið 2014 sést að hann er 19,9% á almennum vinnumarkaði en 14,1% hjá ríkisstarfsmönnum. Áhugavert er að skoða mismuninn milli greina þar sem munurinn er mestur hjá fjármálafyrirtækjum eða 37,5% og þar á eftir í fram­ leiðslu. Minnstur er munurinn hjá hlutastarfsfólki, 2,4%, en þar á eftir hjá starfsmönnum sveitar­ félaga eða 6,7%. vr Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR, segir að þar á bæ hafi verið gerðar reglulegar launakannanir og atvinnurekendur stöðugt hvattir til að taka upp ábyrga launastefnu, t.d. í samræmi við Jafnlaunavottun félagsins. Hún er fyrst spurð um það hvort launa munur milli kynja verði til vegna mismunandi röðunar í launaflokka við upphaf starfs eða hvort það sé eitthvað annað sem ræður þessum óskýranlega mun. „Það er erfitt að svara þessari stóru spurningu,“ segir Ólafía. „Á árum áður voru til sérstak­ ir kvennataxtar en þeir voru lagðir af. Kyn á þannig ekki að vera áhrifavaldur við röðun í launaflokka. Þess ber að gæta að bæði vinnumarkaðurinn og námsval í háskóla er mjög kyn­ skipt á Íslandi. KynsKiptur vinnu­ marKaður Kynskiptur vinnumarkaður þýðir að mikill meirihluti starfsmanna í ákveðnum störfum er af öðru kyninu. Hjúkrunarfræði er eitt dæmi og verkfræði annað um kynskiptan vinnumarkað. Þó að línur á milli „hefðbundinna“ karla­ og kvennastarfa séu ekki eins skarpar og áður telst íslenskur vinnumarkaður fremur kynskiptur og er það stór hindrun í vegi jafnréttis. Viðhorfsbreytinga er þörf og sterkar fyrirmyndir eru mikil vægar. Fyrirtæki hafa á síðustu árum eignast æ fleiri stjórntæki til að bregðast við launa mun kynjanna innan eigin veggja og er Jafnlaunavottun VR eitt þeirra.“ leiðréttur launamunur Kynbundinn launamunur er sá munur á launum karla og kvenna þegar búið er að taka tillit til allra þátta sem hafa áhrif á launin. Stærsti áhrifaþátturinn er vinnu­ tíminn en vinnutími karla er lengri en kvenna, jafnvel þó að ein­ göngu sé verið að skoða starfs­ fólk í fullu starfi þegar launa­ munur kynjanna er reiknaður. Karlar í fullu starfi innan VR unnu að meðaltali 45,1 klst. á viku árið 2014, skv. launkönnun félagsins, en konur 42,2 klst. Aðrir þættir sem hafa áhrif á launin eru starfsaldur, menntun, vaktavinna, mannaforráð og að lokum starfsstétt og atvinnu­ grein. Þegar búið er að taka tillit til þessara þátta er munurinn 8,5% hjá VR árið 2014 en var 15,3% árið 2000. Þessi 8,5% munur sem skýrist af kynferði eingöngu, eftir að tekið hefur verið tillit til allra þátta. launaKannanir vr „Hjá VR er kynbundinn launa ­ munur 8,5%, samkvæmt niður ­ stöðum launakönnunar VR fyrir árið 2014. Hann hefur dregist mikið saman frá aldamótum, eða um 40%, en það er ekki nóg. Kynbundinn launamunur er sá munur sem er á launum karla og kvenna þegar búið er að taka tillit til þeirra þátta sem hafa áhrif á launin, s.s. vinnutíma, starfs­ heitis, atvinnugreinar, menntunar o.fl.,“ segir Ólafía. „Munur á heildarlaunum kynj­ anna innan VR, skv. launakönn­ uninni árið 2014, er 13,3% en á íslenskum vinnnumarkaði í heild 2014 var hann 19,9%, skv. Hag­ stofunni. Það er sá munur sem er á launum kynjanna án þess að tekið sé tillit til áhrifaþátta á launin. Í báðum tilfellum er miðað við starfsfólk í fullu starfi.“ VR hefur ekki mælt launamun eftir landsvæðum en hins vegar er munur milli aldurshópa. „Ef skoðuð er launakönnun VR 2014 má sjá að munur á heildarlaun­ um er minnstur hjá yngsta hópnum eða 11%, körlum í hag,“ segir Ólafía. Kynbundinn launa­ munur er hins vegar minnstur hjá eldri launahópum eins og má sjá hér í meðfylgjandi töflu úr launakönnuninni: Einnig mældist munur á heildar launum eftir starfsstétt­ um og nefnir Ólafía dæmi um annars vegar verslunarstjóra og hins vegar deildarstjóra árið 2014: „Hjá verslunarstjórum í stórmörkuðum, matvöruverslun­ um og söluturnum mældist 17,1% munur á heildarlaunum körlum í hag. Hjá deildarstjórum í fjármála­, tryggingafyrirtækjum eða lífeyrissjóðum mældist 15,3% munur á heildarlaunum körlum í hag.“ jafnlaunavottun vr Jafnlaunavottun VR var hleypt af stokkunum í febrúar árið 2013 og hafa nú 24 fyrirtæki og stofnanir fengið vottun. Flest eru fyrirtækin í verslun og þjónustu, sem endur­ speglar skiptingu félagsins, en þó má finna fyrirtæki úr flestum atvinnugreinum sem og stofnanir á listanum yfir viðtakendur vott­ unarinnar. Öll fyrirtæki, óháð því hvort starfsmenn séu í VR eða ekki, geta sótt um Jafnlaunavott­ un VR. Nokkur stór fyrirtæki hafa fengið Jafnlaunavottun VR og má nefna IKEA, Securitas og Sorpu sem dæmi. Af bönkum er það aðeins Arion banki en bankinn fékk vottunina nýlega. „Jafnalaunavottun VR er markviss leið fyrir atvinnurek­ endur til að uppfylla kröfur nýs jafnlaunastaðals Staðlaráðs Íslands,“ segir Ólafia. „Vottunin er tæki fyrir fyrirtæki og stofn­ anir til að meta stöðu kynjanna með viðurkenndri aðferðafræði og samræmdum viðmiðum. Ferlið gefur atvinnurekendum jafnframt tækifæri til að leiðrétta kynbundinn launamun, ef slíkur munur er til staðar. Vottunin er framlag VR til þeirrar sam­ vinnu sem nauðsynleg er milli launafólks og atvinnurekenda í þessari baráttu – jafnrétti verður aldrei náð nema með samstilltu átaki.“ Að lokum er það stærsta spurningin: Er einhver góð ástæða fyrir því að þetta sé ekki komið í lag? „Nei,“ svarar Ólafía. „Til að leiðrétta launamun af þessu tagi þarf fyrst og fremst breytingu á viðhorfum í sam­ félaginu. Launamunur kynjanna endurspeglar stöðu kynjanna í þjóðfélaginu og við eigum aldrei að sætta okkur við að hann sé til staðar. Þess vegna hefur VR lagt mikla áherslu á að berjast fyrir jafnrétti á vinnumarkaði, sérstak­ lega fyrir sömu launum fyrir sömu vinnu óháð kyni. Mér finnst mikilvægt að stjórnendur hafi það ávallt hugfast þegar þeir eru að ráða í störf að starfið sé vel skilgreint og ekki kynbund ið þegar ákvörðun um laun er tekin. Ef stjórnendur virða þetta mun kynbundinn launamunur minnka fyrr.“ Óskýrður launamunur – sá hluti sem ekki er hægt að skýra með þeim aðferðum sem notaðar eru í skýrslunni – er um 6,5% á Íslandi, um 5% í Svíþjóð og um 7% í Dan­ mörku og Noregi. Ólafía Rafnsdóttir, formaður VR. „Mér finnst mikilvægt að stjórnendur hafi það ávallt hugfast þegar þeir eru að ráða í störf að starfið sé vel skil- greint og ekki kynbundið þegar ákvörðun um laun er tekin.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.