Tímarit Máls og menningar - 01.12.1953, Page 131
ÞJÓÐIR OG TUNGUMÁL
241
XI
Dravídamál
í suðurhluta Indlands og norðurhluta Seylons tala 100 milljónir
manna tungur, sem kallaðar eru Dravídamál. Helzt þeirra eru nefnd
tamil, telugu, kanara og malayalam. Það er álit fræðimanna, að þær
séu runnar af tungum þeirra frumbyggja, er byggðu Indlandsskaga,
áður en indóevrópskar þjóðir settust þar að. Sérstök stafróf eiga þess-
ar tungur sér, sem runnin eru af Devanagari-stafrófinu, er sanskrít
var rituð á.
Eitt einkenni þessara tungna er það, að þar þekkist ekki málfræði-
legt kyn, heldur er orðunum skipt í æðri og óæðri flokk eftir því, hvers
konar veru þau tákna. Sálarlausir hlutir teljast til óæðri flokksins, og
Dravídamálin skipa konum og jafnvel gyðjum í þann flokk. Tvö orð
eru fyrir 1. persónu flt., „við“, notuð eftir því, hvort sá sem ávarpaður
er, er innifalinn í merkingu orðsins eða ekki, þ. e. við = þú og ég;
við = liann og ég. Raunar er slíkt ekki neitt eins dæmi í Dravídamál-
um, því að það þekkist í nokkrum öðrum tungum Indlands, svo sem
Múnda-málunum og jafnvel indóevrópska málinu bengali, í Norður-
Indlandi.
XII
Semízk og hamízk mál
Um norðurhluta Blálands hins forna, sem annars er í daglegu tali
nefnt Afríka, og á Arabíuskaganum verður á vegi okkar stór og mjög
útbreiddur málaflokkur, semízk og hamízk mál, sem töluð eru af 75—
80 millj. manna. Mörg þeirra eru mál fornra menningarþjóða, svo sem
arabíska og hebreska. Tunga Mesopotamíumanna, akkadíska, öðru
nafni babýlónska, er eitt elzta semízka málið, sem menn vita deili á, og
enn er arabíska meðal helztu menningartungna heims. Venjulega er
málaflokki þessum skipt í tvennt og þá talin til semízkra mála hebreska,
arabíska, eþíópísk mál o. fl. og til hamízkra mála tungur Berba, Kús-
híta o. fl., ennfremur koptíska, egyfzka, lýbíska. Kúshítar byggja aust-
asta hluta Súdans og Eþíópíu (Abessíníu) að nokkru leyti og víðar, en
Berbar nefnast einu nafni fjöldi þjóða eða smárra þjóðflokka í Norð-
ur- Afríku.
Tímarít Máls og menningar, 2.—3. h. 1953
16