Tímarit Máls og menningar - 01.12.1953, Page 138
248
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
þau eru ekki til sem málhljóð á öðrum málum. Það eru sams konar
hljóð og myndast þegar skellt er í góm.
A Madagaskar, eylandi miklu við suðaustanverða álfuna, teljast mál
sumra frumbyggjanna til semízkra tungna og annarra til bantúmála, en
urn meirihluta eyjarinnar er töluð tunga, sem skyldust er sumum mál-
um eyþjóða í sunnanverðu Kyrrahafi (polynesísku) og kallast malagasi.
XV
Meginlandsmál Asíu
Eins og fyrr getur, eru töluð semízk mál og indóevrópsk um allan
suðvesturhluta Asíu með fáum undantekningum, þar sem eru tyrknesk
mál (af Úral-Altai-flokknum) og Kákasusmálin í Kákasus milli Svarta-
hafs og Kaspíhafs. Til þeirra teljast m. a. georgíska (grúzíska), adigeísk
mál og Daghestan-mál, en Kákasusmálunum er skipt í ýmsa fleiri flokka.
Annars er ýmislegt á huldu um þennan flokk, og málvísindamenn hafa
jafnvel reynt að nota hann sem eins konar ruslakistu, skipaÖ þar mál-
um, sem þeir voru annars í vandræðum með, svo sem basknesku, og
jafnvel etrúskísku (á Ítalíu í fornöld).
Austur um allt meginland Asíu innan Sovétríkjanna eru ríkjandi
indó-evrópskar tungur (rússneska) og fjöldi tungna af Úral-Altai-
flokknum, finnsk-úgrísk mál einkurn um norðanverða Síberíu, en tyrk-
nesk um Mið-Asíulöndin. Meðal finnsk-úgrískra þjóða nyrzt í Síberíu
er ein, sem venjulega er kölluð Samójedar, en hana megum við ekki
kalla svo, ef við viljum vera kurteis. Samójedar er gamalt rússneskt
skammaryrði og merkir sjálfsætur, menn sem eta sjálfa sig. Það er
sami andi hvítra manna gagnvart öðrum kynflokkum og þegar frum-
byggjar Grænlands og N.-Ameríku eru kallaðir eskimóar, einu versta
skammaryrði tungu sinnar. Það merkir hráætur.
Austast á norðausturhorni Asíu, á Kamtsjatkaskaga og raunar öllum
skaganum gegnt Alaska í N.-Ameríku, er talaður flokkur tungná, sem
kallaðar eru fornasísk (palaeo-asiatisch) eða hyperboreísk mál, en ekki
er mikið kunnugt um tungur þessara þjóða, enda hafa þær lifað þarna
mjög afskekktar fram á síðustu áratugi. Þó er víst talið, að tungur
þeirra séu skyldar tungu ainúa, en svo nefnast frumbyggjar Japanseyja,
og eru enn nokkrar leifar þeirra þar.