Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1966, Page 98

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1966, Page 98
Tímarit Máls og menningar leið að forðast beri umfram allt hetju- klisjuna, hann bendir á að mikilvægt sé í því sambandi að leika atriðið í nákvæmu tempói, samræma trumbuslögin öðrum hljóðum, leggja áherzlu á baráttu Katrínar milli tvennskonar ótta, þ. e. óttans vegna bæjarins Halle og óttans um líf sitt, hann varar sérstaklega við krampakenndum of- urmegnunarviðbrögðum, sem leikurum hætti við að fá í tragískum atriðum. Þessi krampi er eins og geisandi faraldur í at- riðinu en tempó hvergi nærverandi, Bríet Héðinsdóttir virðist að nokkru reyna að fara eftir fyrirmælum um afstöðu Katrínar í þessu atriði, beitir aftur á móti sterkum yfirleik, sem vinnur eindregið á móti allri þeirri viðleitni, enda mótleikaramir niðri á sviðinu öskrandi krampasjúklingar. Ut- koman verður einskonar skopstæling á hetjuklisjunni. Lárus Pálsson í blutverki ofurstans geng- ur inn með stafinn bogna, það er úr mód- elinu. Uppgerðarkvensemin, sem Pilz lagði þessum karli til í Berlínaruppfærslunni var í kostulegri mótsögn við elli hans, og bogna stafinn notaði hann þannig að í hvert sinn sem frygðin greip hann studdi hann sig við stafinn, sem lét undan en rétt- ist aftur snöggt — þetta undirstrikaði kómíkina. Greinilega er Lárus á svipuðum miðum, hefur bætt því við, að hafa öldung- inn fullan, elli hans og ölæði renna hins vegar saman í eina óljósa heild, stafnum er ótæpilega drepið niður hvenær sem er og allt glatast að lokum eða flýr á náðir einhverskonar bastarðs af Holbergstíl. Þannig mætti lengi telja. Dæmin sem nefnd hafa verið eru ekki valin vegna þess að þau séu öðrum verri, öll önnur atriði, allir leikaramir með tölu eru ofurseldir þessu fálmi. Það er engu líkara en leik- stjórinn og leikararnir hafi skammazt sín fyrir að þurfa að leita á náðir módelupp- færslunnar og reyni í ofboði að fela hvað eina sem þaðan er komið eða afskræma það — en umfram allt virðist þó mikilvægt að forðast alla ígmndun á tilgangi þessara fyrirmæla. Leikstjórinn undirstrikar þetta líka í grein sinni í leikskrá þar sem hann livað oní annað kemur með þá skoðun að fyrirmæli módelsins heri að varast því ekki sé gerlegt að „líkja fullkomlega eftir öðr- um leikurum". Þetta eitt sýnir Ijósast að manninum er ekki Ijós svo mikið sem fyrsti stafurinn í stafrófi umræddra vinnu- bragða. Það þýðir lítið að tefla fram stóra trompinu sínu um misheppnaða módelsýn- ingu í London en gleyma því hvernig sömu vinnubrögð dugðu í Múnchen, París, Rott- erdam og víðar þar sem stórfenglegar og lifandi sýningar hver annarri ólíkar um túlkunarmáta spruttu upp af þessum vinnu- brögðum. Enda kemur það í Ijós að fyrir- slátturinn um „skapandi frelsi, sem maður öðlast með þversögnum“ er ekki annað en orðagjálfur til að breiða yfir dautt og ves- ælt fálm eftir leikbrögðum úr því verki sem hefði heiðarlegri starfskröftum upp á annað og meira að bjóða. Utstrikanir leikstjórans á texta verksins árétta enn þá skoðun, að honum sé síður en svo annt um innihald þess og anda. Raunar hefur enn ekki fundizt, þrátt fyrir víðtæka eftirgrennslan, neinn sá aðili við stofnunina, sem gert gæti grein fyrir stytt- ingunum og er helzt að skilja að um þær viti enginn með vissu. Þetta er að vísu undarlegt því hreytingar á verkinu eru óleyfilegar nema þær séu samþykktar af Suhrkamp Verlag Frankfurt/M og varla hefur það góða fólk gefið Þjóðleikhúsinu frjálsar hendur um styttinguna. Samt má í fljótu bragði sjá ýmislegt sem ekki er til fyrirmyndar. Það má til dæmis undarlegt heita að fella niður lokasetningu fyrstu myndar: Will vom Krieg leben./Wird ihm 88
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.