Tímarit Máls og menningar - 01.06.1966, Blaðsíða 107
Dagbók Bjarna Thorsteinssonar amtmanns
28. Febrúar heima og skrifadi. hafdi megnt qvef.
lti Marts. Var heima vegna qvefs og lá ad mikluleiti, heimsoktu mig
Hoppe og Catheket Gudmundsen er hafdi bodid mér í veitslu á fædingardag
konu sinnar, hvoriu eg vard ad hafna.
2. Marts. Samlcoma i Commissioninni, var enn ad nýu discuterad um brefid
til Rentukammersins áhrærandi peningana; helst var talad um definitionina
á vöruverdi, hvor loksins eptir Orst. frumvarpi var antekinn. Med fáeinum,
smávegis umbreitingum var bréfid antekid, til hreinskriftar. Þarnæst var talad
um þá vidtlöftugu sök, áhrærandi Skattinn og kom öllum saman um, ad
Commiss hvorki hefdi nægiligt vit eda tíma, til ad fást þarvid, m.m. Um qvöld-
id var eg í heimbodi hiá Iustsr. Bentzen, var þar margmennt, þó mest af ungu
folki, af því þar var dansad.
3. Marts. heima; kom til mín Hoppe og syndi mér ad nýu frumvarpid til
peninga hréfsins og sýndist, sem þad nú ætti að kallast fullgiört, þó, sem mér
virdtist, miklu midur enn mitt fýrsta frumvarp.
4. Marts. Var eg hiá Kr. og hann nockra stund hiá mér. Um qvöldid hiá
Simonsen.
5. Marts. revideradi ad nýu höndlunar forestillingen og Hoppe hiá mér
líka Magnussen.
6. Marts. Var samkoma i Commissioninni og mest disputerad um fáeina
punkta í höndlunar Forestillingen; veikust þokti Argumentationin um ad
höndlunin skyldi vera tollfrí, og átti ad utfinna fýri því ný Argument, o.s.v.
Voru hiá mér Kaupmenn Grosseri Magnus, Gudmann, Simonsen og Fl.
7. Marts. Var eg nockra stund á isl. Contoiri, ad ödruleiti heima og skrif-
adi.
8. Marts. bordadi eg til middag hiá Kaupm. Gudmann; þar var samqvæmi
talsverdt, þó mest af kaupmönnum. Um qvoldid hiá Simonsen.
9. Marlius. Samkoma i Commissioninni. Umtalsefnid var bréf, er höfdu
geingid milli Rentuk. og Canc., utaf erkleringum frá Amtmönnunum, um ný
lög fýri húshændur og landseta á Islandi. Canc. var af annari meiningu, enn
Rentukammerid, eins líka Amtmennirnir innbýrdis. Commissioninn var ogsvo
sundurþýck, svo þessi deliheration151 endadi med eingu, nema fýri málamind-
1,1 UmræSa.
201