Tímarit Máls og menningar - 01.06.1966, Blaðsíða 30
Tímarit Máls og menningar
verður með berum augum. Með þess-
ari reglu er raunveruleikinn bútaður
sundur í einangraðar skynjanir og
síðan eru dregnar af þeim sundur-
lausar og ósamstæðar ályktanir, þ. e.
hinir víðfrægu .sjálfsögðu blutir1 eða
,staðreyndir‘ (matters of fact) þeirra
Bandaríkjamanna. Þar með er alveg
gengið fram hjá hinu félagslega,efna-
hagslega og sögulega umhverfi sem
,staðreyndirnar‘ gerast í, og eins hinu
að það eru menn sem bera sjálfir á-
byrgð á sköpun þessa umhverfis.
Þannig má hefja eymdina og óhófið
og jafnvel sprengjuregnið upp í veldi
náttúrufyrirhæra eða örlaga, rétt eins
og um væri að ræða veðurskilyrði,
náttúruhamfarir eða arfgengan van-
skapnað sem enginn ber ábyrgð á og
menn hljóta að beygja sig fyrir í auð-
mýkt sem efsta dómi guðs. Þessi auð-
mýkt útheimtir aftur að menn leitist
við að mýkja hlutskipti þeirra sem
verða harðast úti með kærleiksríkri
góðgerðastarfsemi. Þótt hin ame-
ríska ,staðreynd‘ sé þannig sveipuð
gervi óhvikullar hlutlægni, er hún
nær því að vera andatrú sem notuð
er til þess að treysta núverandi yfir-
drotlnun Bandaríkjamanna og skjóta
þekkingarfræðilegum stoðum undir
hina góðu samvizku þeirra. Fjöldinn
allur af venjulegum Bandaríkjamönn-
um varpar frá sér hverri hugsun sem
ristir eitthvað undir yfirborðið, af
hrokafullri geðshræringu, með því
fororði að hún sé villandi eða þvætt-
ingur af evrópskum toga; segir það
sína sögu um veldi þeirra hagsmuna
sem gert hafa ,staðreyndina‘ að þjóð-
arskurðgoði.
Þessi sundurbútun raunveruleikans
í ,staðreyndir‘ styrkir ekki aðeins þá
hugmynd að Bandaríkjamenn heyi
,hreinlegt‘ stríð að hætti heiðarlegra
manna fyrir heimsins bezta málstað.
heldur hjálpar hún þeim einnig til að
samsama andstæðinginn djöflinum.
Eða gerir hann sig kannski ekki sek-
an um það guðlast að raska þjóðfé-
lagsskipan sem er í samræmi við lög-
mál náttúrunnar og guðs, og þann
glæp að trufla sálarró þeirra með því
að gera þá ábyrga fyrir þessari þjóð-
félagsskipan? Andstæðingur sem
hegðar sér þannig, getur naumast
verið annar en djöfullinn sjálfur. Eft-
ir að Bandaríkjamenn hafa leitt í ljós
þessi frumspekilegu sannindi taka
þeir til við að leita að ,staðreynda‘-
sönnunum fyrir fordæðuskap and-
stæðingsins. Hugmyndafræði ,stað-
reyndarinnar‘ levsir þá undan þeim
vanda að skoða byltingaraðgerðir
andstæðingsins í ljósi rökrænna
og óhjákvæmilegra breytinga á þjóð-
félagsaðstæðunum. Þessar aðstæður
eru í raun og veru fjarri því að
vera staðreyndir í binum ameríska
skilningi orðsins. Þess vegna er með
engu móti hægt að telja þær til þess
veruleika sem maðurinn skapar með
athöfnum sínum. Þegar hinar liarð-
neskjulegu aðgerðir og mistök sem
124