Tímarit Máls og menningar - 01.12.1970, Blaðsíða 89
Úrrœðið
FORMAÐURINN: Ég er formaðurinn í flokkshúsinu næst landamærunum. Ég er
því samþykkur að félagi minn hér í stöðinni fari með ykkur sem fylgdar-
maður. En það er órói í verksmiðjunum í Múkden, og það horfir þessa dag-
ana öll heimsbyggðin á þessa borg, hvort ekki sjáist einn úr okkar hópi
ganga útúr kofum kínversku verkamannanna, og égheyriþaðliggifallbyssu-
bátar viðbúnir á fljótunum, og skriðdrekalestir standi á j árnbrautargörð-
unum, til að ráðast samstundis á okkur ef einn okkar sést þama. Ég legg
semsé til við félagana að þeir fari sem kínverjar yfir landamærin. Við
áróðuTsmennina: Þið megið ekki sjást.
Aróðursmennirnirtveir: Við munum ekki sjást.
FORMAÐURINN: Ef einhver ykkar særist má hann ekki finnast.
Áróðursmennirnirtveir: Hann mun ekki finnast.
formaðurinn: Eruð þið þá viðbúnir því að deyja og fela hinn dauða?
áróðursmennirnir tveir : Já.
formaðurinn: Þá eruð þið ekki lengur þið sjálf, þú ekki Karl Schmitt frá
Berlín, þú ekki Anna Kjersk frá Kasan og þú ekki Peter Schmitt frá Moskvu,
heldur öllsaman nafnlaus og móðurlaus, óskrifuð blöð, sem byltingin ritar
á sín fyrirmæli.
ÁRÓÐURSMENNIRNIR TVEIR: Já.
FORMAÐURINN réttir fram grímur, þau setja þær upp: Þá eruð þið uppfrá þess-
ari stundu ekki lengur einskisvirði heldur uppfrá þessari stundu og senni-
lega þangaðtil þið tortímizt eruð þið óþekktir verkamenn, baráttufúsir kín-
verjar, fæddir af kínverskri móður, gulir á hörund, talandi í svefni og óráði
kínversku.
ÁRÓÐURSMENNIRNIR TVEra: Já.
FORMAÐurinn: í þágu kommúnismans samþykkir framsókn hins örbjarga
lýðs allra landa, kveðandi já við útfærslu byltingarinnar í heiminum.
ÁRÓÐURSMENNIRNIR tveir : Já. Ungi félaginn okkar sagði einnig já. Þannig
tjáði hann samþykki sitt við útmáun andlits síns.
ST JÓRNARKÓRINN:
Hver sem berst fyrir kommúnismann þarf að kunna að berjast og berjast
ekki; segja sannleikann og segja ekki sannleikann; sýna þjónslund og
neita að sýna þjónslund; halda loforð og halda ekki loforð; leggja sig í
hættu og forðast hættu; vera þekkjanlegur og vera óþekkj anlegur. Hver
sem berst fyrir kommúnismanum setur eina dyggð öllum ofar: að hann
berst fyrir kommúnismanum.
279