Tímarit Máls og menningar - 01.11.1971, Qupperneq 5
Leszek Kolakowski
Merking hngtaksius ,vinstri4
Árið 1966 rak Gomulka Kolakowski úr pólska kommúnistaflokknum fyrir að halda uppi
vörr.um fyrir uppreisnina 1956, en hún varð til þess að Gomulka náði völdum á ný.
Seinna var Koiakowski einnig vísað úr stöðu sinni við heimspekideildina í Varsjár-
háskóla.
Þetta eru algeng tíðindi nú á tímum. Við getum minnzt þess að það sem Bandaríkin
gera í Iran, Guatemala og Víetnam, gera Sovétríkin á svipaðan hátt í Póllandi, Ung-
verjalandi og Tékkóslóvakíu. Og það sem austan-löndin gera við framúrskarandi hugsuði,
gera Bandaríkin á svipaðan hátt við fjölda af ungum prófessorum og kennurum. Einkenni
tímanna er sá heiður, sem hlýzt af vissri tegund ósigurs.
Hér fer á eftir styttur og staðfærður kafli úr bók eftir L. Kolakowski, á þýzku heitir
hún „Der Mensch ohne Alternative", útg. Piper & Co. 1964 og á ensku „Toward a Marxist
Humanism“, útg. Grove Press. 1968. Þessi þýðing er gerð úr báðum útgáfum. — Þýð.
Sérhvert verk mannsins er málamiðlun milli efnis og verkfæris. Verkfærið
hentar aldrei fullkomlega efninu, þeas. ekkert verkfæri er til sem ekki þarf
að bæta. Ef við gerum ráð fyrir mismunandi færni manna, þá takmarkast
útkoman af göllum verkfærisins og viðnámi efnisins. Samt er viss lágmarks-
samræming milli verkfæris og efnis nauðsynleg, þannig að útkoman verði
ekki eitthvert afskræmi. Maður getur nefnilega ekki burstað tennurnar með
borvél, eða gert heilaaðgerð með blýanti. Að vísu rembast menn stundum
við að gera slíkt, en árangurinn er í hæsta máta ófullnægj andi.
Vinstrihyggja sem neikvæði (negation)
Menn kunna að segja að ég hafi ekki uppgötvað nein ný sannindi með
ofanskráðum hugleiðingum. Það er heldur ekki tilgangur minn. Þó skulum
við minnast þess, að gömul sannindi eru um of fallin í gleymsku. Félagslegar
byltingar eru málamiðlun milli útópíu og sögulegrar raunveru. Útópían er
verkfæri byltingarinnar, og efnið er samtíma ástand mannheimsins, sem
menn vilja gefa nýtt form. Og verkfærið verður að einhverju marki að
samsvara efninu, ef niðurstaðan á ekki að verða afskræming. Það er t. d.
ekki hægt að kenna nýfæddu barni að ganga.
83