Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1971, Síða 12

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1971, Síða 12
Tímarit Máls og menningar gagnslaus við pólitíska stefnumótun. Hugtökin ,vinstrihyggj a‘, ,framfarir‘, og ,frelsi‘ innihalda óteljandi mótsagnir og pólitískar deilur verða ekki til vegna samþykkis eða höfnunar á slíkum hugtökum. Þessvegna skulum við viðurkenna núverandi þjóðfélagsveruleika sem staðreynd og leita að grundvallarátökunum sem einkenna sögu samtímans í stað þess að hugsa upp auðskilið en árangurslítið hugtak um vinstrihyggju sem á við á öllum tímum. Þessi átök eru fyrst og fremst stéttaátök, og í annan stað pólitísk átök. Samt er hin pólitíska barátta ekki einfaldlega stétta- baráttan yfirfærð í átök á milli flokkanna. Svona er þetta, vegna þess að skipting í stéttir er ekki sú eina sem möguleg er, og þessi skipting verður þeim mun flóknari sem stéttirnar eru margskiptari samkvæmt þjóðerni eða lífsskoðun, auk þess verða pólitískar skiptingar innan stéttanna eftir því sem hver hópur tekur á sig sjálfstæðara form. Við þessar aðstœður getur hið pólitíska líf ekki endurspeglað stéttaátökin hreint og beint, heldur tjáir þau þvert á móti óbeint og óskýrt. Auk þess hefur þetta aldrei verið öðruvísi, því að annars hefðu öll átök verið leyst fyrir lifandi löngu. Þessvegna er fullyrðingin, að verkalýðsstéttinni sé það ævinlega fyrir heztu að tilheyra vinstriöflunum ekki endilega alltaf rétt. I fyrsta lagi er það ekki eiginleiki vinstriafla að framkvæma hagsmuna- mál manna á móti vilja þeirra, né heldur að þvinga þá til að þiggja vel- gerðir sem þeir æskja ekki. í öðru lagi er mögulegt að í vissu landi sé verkalýðsstéttin undir miklum áhrifum þjóðernisstefnu, samt sem áður fer vinstrihyggj a ekki að styðja þjóðerniskenndar kröfur; í öðrum löndum er verkalýðsstéttin rótfest í trúarlegar hefðir, en vissulega er vinstrihyggja veraldleg hreyfing. Jafnvel þær kröfur sem verkalýðsstétt setur fram, geta verið í mótsögn við kröfur vinstrihyggju. Til dæmis hafði enska verkalýðs- stéttin hag af nýlenduarðráni um langan tíma — en vinstrihyggj a er andvíg nýlendustefnu. Þetta er ástæðan til þess, að ekki er mögulegt að skilgreina vinstrihyggju með þeirri fullyrðingu, að hún sé tillitslaus og muni alltaf, hvað sem á geng- ur, styðja kröfur verkalýðsins, eða að hún sé alltaf á máli meirihlutans. Vinstrihyggja verður að skilgreinast á grundvelli viss hugarfars, en slík skilgreining heldur þeim möguleika opnum, að hún muni í mörgum tilfellum lenda í minnihluta. Jafnvel þótt í dag fyrirfinnist engir vinstrisinnar sem ekki eru samtvinnaðir baráttu verkalýðshreyfingarinnar, jafnvel þótt engar vinstri hugmyndir verði framkvæmdar óháð stéttaþj óðfélaginu, og jafnvel þótt vinstrihreyfing verði aðeins til fyrir tilstilli baráttu hinna kúguðu, þá 90
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.