Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1971, Page 59

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1971, Page 59
Um íslenzka þjóðhœtti þegar frá líöur, þótt þeim þyki einatt sem þesskonar fræði verði einna sízt látin í askana, meðan þau eru enn í fersku minni. En ef við víkjum t. d. að list 20. aldarinnar, kvikmyndalistinni, eða sviðsetningu leikrita, sem gerast eiga á horfnum tíma, þá er kunnara en upp þurfi að telja, hversu menn renna einatt átakanlega blint í sjóinn í þeim efnum. Ekki hara af óvandvirkni, heldur þekkingarleysi og skorti á tiltækum heimildum. Hver mundi t. d. ekki fagna því, ef til væru smásmugulegar þjóðháttalýsingar frá dögum Galdra- Lofts eða Marðar Valgarðssonar? Það er ekki auðgjört að meta sinn eigin samtíma, og við vitum ekki með vissu, hversu vel hann varðveitist fyrir komandi kynslóðir í öllu því prentaða máli, sem út er gefið, segulböndum, ljósmyndum og kvikmyndum. Sjálfsagt verður auðveldara að vinna úr þessu efni einhverja samfellda mvnd en þegar ekkert slíkt er við að styðjast, eins og lengst af hefur verið. En samt gæti sú mvnd orðið ærið villandi, ef ekki hefur heinlínis verið safnað efni með forsiá og af ásettu ráði. Ef við ætluðum til dæmis að lýsa einhverjum stórum vinnustað eftir slíkum gögnum. þ. á m. vinnubrögðum og aðbúnaði starfsfólks. há gæti myndin orðið allólík eftir því, hvort farið væri eftir stjórnarhlaði eða stjórnarand- stöðublaði. málgagni atvinnurekanda eða launþega. Sömuleiðis gæti revnzt varasamt að fara í lýsingu verkfæris eða heimilistækis eftir gömlum aug- Ivsingum eða útlistunum í sölupésum fyrirtækja, því að þar er aldrei getið um annað en hina jákvæðu hlið. — Og þannig er það í rauninni einnig um ritaðar heimildir frá fyrri öldum, sem reynt er að draga ályktanir af. Við vitum ekki með vissu, hvað af því er óafvitandi áróður eða a. m. k. nöldur og kvartanir, sem stundum geta átt sér persónulegar sálrænar orsakir. Klaufskur maður skellir kannski skuldinni á verkfærið fremur en sjálfan sig, en sé hann penna- fær. getur lýsing hans orðið mönnum síðari tíma að einskonar trúaratriði um þetta tiltekna áhald. Á öðru er þó ekki unnt að byggja, fyrr en skipuleg þjóðháttasöfnun hefst. En slík söfnun er ekki gömul í hettunni hér á landi. Hið fyrsta af slíku tagi, sem það nafn er gefandi, er alveg samferða þjóð- sagnasöfnuninni: þ. e. hin alkunna Áskorun fornleifanefndarinnar í Kaup- mannahöfn árið 1817 til embættismanna á íslandi, þar sem m. a. er beðið „um sögusagnir meðal almúgans um fommenn, merkileg pláss, fornan átrún- að eður hjátrú á ýmsum hlutum, sérlega viðburði osfrv.“ — Heldur lítill afrakstur varð þó af þessari umleitan. Þá kemur, varðandi fyrirhugaða íslandslýsingu Hins íslenzka bókmennta- félags, spurningalisti til allra presta á landinu árið 1839. En í 58. grein er um 137
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.