Tímarit Máls og menningar - 01.11.1971, Síða 71
Kennsla og nám í náttúruvísindum
kennslu og náms í náttúruvísindum er því nauðsyn, ekki aðeins í háskóla
okkar heldur á öllum skólastigum — ekki sízt í barnaskólum og gagnfræða-
skólum.
Segja má að vísindi og tækni sé orðin lífsnauðsyn fyrir áframhald
menningar yfirleitt — að viðbættum sjálfum náttúrugæðunum — en það er
einmitt undir tæknistigi og skipulagi þjóðfélagsins komið hvort þau verða
hagnýtt til gagns eða ekki.
Nú verða menn reyndar meir og meir varir við neikvæða hlið hinnar
óbeizluðu tækniþróunar — nefnilega þá hættu að verksmiðjurnar kæfi hina
lifandi náttúru í úrgangsefnum sínum og eiturefnum og eyði þar með raun-
verulegum grundvelli mannlífsins.
Grundvöllur æðri menntunar hefur löngum verið svonefnd húmanisk
fræði: Saga, bókmenntir, listir, málvísindi, fyrst og fremst fornmálin gríska
og latína, sér í lagi latína. Kunnátta í latínu var grundvöllur allrar háskóla-
menntunar langt fram á þessa öld. Menntaskólarnir voru latínuskólar og
einnig nefnir svo (Stærðfræðideild við Menntaskólann í Reykjavík var
stofnuð árið 1919).
Ilagnýt fræði lærðu menn sem iðn eða handverk hjá meistara, og kunn-
átta í iðnaði barst þannig frá kynslóð til kynslóðar, jafnvel þótt bæði meist-
ari og sveinn væru ólæsir.
Þetta kerfi iðnmenntunar var byggt á eldfornri hefð og er reyndar við
lýði enn í dag, m. a. hér á landi.
Þessi skipting í æðri bóklega menntun og óæðri verkmenntun er sjálfsagt
upprunalega afleiðing af skiptingu í yfirstéttir og vinnulýð. Fræðileg
tæknimenntun kom löngu síðar sem viðbót við háskólana eða sem sérstakir
verkfræðiskólar á sama stigi og háskólar, sem nefndust fj öllistaskólar. (École
polytechnique í París 1794).
Nám í náttúrufræðum er ekki aðeins hagnýtt og gagnlegt þeim sem ætla að
starfa á einhverju sviði verkvísinda, það er einnig grundvöllur almennrar
menntunar ásamt hinum svonefndu hugvísindum. Vísindin eru í rauninni
ein heild og öll vísindi eru bæði hugvísindi og raunvísindi, ef rétt er skoðað.
Á náttúruvísindum grundvallast skoðun manna og skilningur á heiminum,
og heimsmynd vísindanna er sú eina rökrétta mynd sem unnt er að gera af
heiminum.
Vísindin eru mönnum þannig tæki til að skilja umhverfi sitt og ná valdi
á náttúrunni. Auk þess hafa þau áhrif á þróun þjóðfélagsins og gagnkvæmt.
Erlendis hefur á síðari árum verið mjög mikil hreyfing í þá átt að auka
149