Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1971, Page 79

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1971, Page 79
Kennsla og nám i náttúruvísindum Nú finnst manni, að ekki verði framar neitt uppgötvað, rannsakað eða mælt án dýrra tækja og góðrar vinnuaðstöðu. Náttúruvísindi og tækni verður í æ ríkari mæli undirstaða þess sem við köllum þekkingu, og nokkur þekking á náttúrufræðum því nauðsynlegur hluti af almennri menntun. Hér er auðvitað ekki átt við sérfræðinám heldur kennslu undirstöðuatriða sem eru meira og minna sameiginleg öllum náttúru- vísindum. Sérfræðinám á að byggja á slíkri undirstöðu. Of mikil sérhæfing í námi og sérstaklega sérhæfing of snemma er skaðleg, vegna þess að hún verður á kostn- að almennrar menntunar. Sá sem stundar sérfræðinám einbeitir sér á þröngt svið — hann veit meira og meira um minna og minna eins og sagt er. Sér- fræðingar þurfa langa þjálfun á sínu sviði en þeim hættir til að verða skiln- ingslitlir á annað en sín eigin fræði. Um sögu vísindanna verður ekki fjallað án þess að tala um tilraunir og niðurstöður þeirra og áhrif vísindalegra uppgötvana á framleiðslu og þjóð- félag — sem er reyndar sumt alkunnar staðreyndir t. d. áhrif af aukinni orku- notkun í formi kola, olíu, rafmagns og kjarnorku eða þróun iðnaðar og sam- göngutækja, lækning sjúkdóma o. s. frv. Vandamál eins og nægilegt fæði, hús og klæði, eldsneyti, lyf, heilsugæzla, hreint loft, hreint vatn, upppeldi og fræðsla — allt er þetta viðfangsefni vísinda og tækni. Sem frekari dæmi mætti nefna uppgötvun benzínhreyfilsins eða rafalsins. Notkun rafaflsins sem hreyfiorku var mikil framför. Rafaflið er unnt að flytja víðs vegar — það getur verið til taks langt frá framleiðslustað. Notkun raf- magns í stað gufuafls fylgir líka hreint umhverfi. Þróun í notkun málma er einnig athyglisverð — léttmálmar koma æ meir í stað járns og stáls — og svo loks plastefnin. Kennsla og nám í vísindum er sköpunarstarf líkt og rannsóknarstarfið. Sköpunargáfa er verðmæt — og margir ungir menn eiga þá gáfu í ríkum mæli — en vandséð er hvernig hún verði fundin, prófuð eða hagnýtt. Kennsla í náttúruvísindum er einmitt að nokkru leyti fólgin í verklegri æfingu eða þjálfun í vinnuaðferðum þar sem menn læra að beita vísindalegri aðferð. Gallinn á verklegri kennslu eins og hún er yfirleitt framkvæmd, er m. a. sá að stúdentar eru látnir endurtaka tilraunir sem áður hafa verið gerðar og reyna að fá rétt svör. Athygli og hugsun nemandans beinist á þann hátt ekki að frumlegri, eiginlegri rannsókn — tilraunirnar hvetja ekki nægilega til að draga sjálfstæðar ályktanir af eigin athugun. Það má kannski orða það svo, að verklegu æfingarnar séu ekki lifandi tilraunastarf. 157
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.