Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1971, Page 96

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1971, Page 96
7'ímarit Máls og menningar ræða, heldur ótvíræða stuðningsyfirlýsingu. En hver sá lesandi bókarinnar, sem ekki væri málinu að öðru leyti kunnugur, hlyti að mynda sér þá skoðun af lestri hennar, að varla hefði neitt markvert gerzt í engil- saxneskri heimspeki síðustu hálfa öldina — eða allt síðan þeir Russell og Wittgen- stein mótuðu helztu kenningar hins rök- ræna pósitívisma. Þorsteinn gerir hvergi nánari grein fyrir breytingum, sem síðan hafa orðið á rökgreiningarheimspekinni, né þeirri gagnrýni á pósitívismanum, sem fram hefur komið innan vébanda hennar. Á bls. 86 tekur hann upp athugasemda- laust (og að því er virðist án þeirrar hneykslunar, sem hliðstæð sannfæring Heg- els vekur hjá honum) sjálfshól Wittgen- steins úr formálanum að Traclatus logico- philosophicus, en þess er hvergi getið, að sjálfsgagnrýni hans leiddi síðan til þess að hann gerðist upphafsmaður nýs heim- spekiskóla: þess sem oftast er kallaður heimspeki hins eðlilega máls (philosophy of ordinary language). Þær umræður, sem Tractatus logico-philosophicus og rit Vínar- skólans komu af stað, leiddu smátt og smátt í ljós, að tvær meginstoðir hins rök- ræna pósitívisma voru ótryggar: sú kenn- ing, að öll reynsla væri samansett af ein- földum, aðgreinanlegum frumstaðreyndum (atomic jacts, eins og Wittgenstein kallaði þær) og til væri algild og einföld forskrift að rökrænni byggingu málsins, sem tæki í senn mið af náttúruvísindunum og auð- veldaði framþróun þeirra, en réði bót á eða gerði a. m. k. heimspekilega óskaðlega tví- ræðni og ógagnsæi hins daglega máls. Fráhvarf Wittgensteins frá þessum sjónar- miðum olli því, að í stað hinnar pósitívis- tísku gagnrýni málsins setti hann kreddu- lausa athugun á margbreytileik þess, án þess að gera nokkurn af hinum ýmsu merk- ingarmátum þess að altækri reglu eða mælikvarða á alla hina. Þessa heimspeki hins eðlilega máls má auðvitað túlka á tvo vegu: stundum er litið á málsathug- unina sem tæki til að eyða öllum heim- spekilegum vandamálum (og sjálfur var Wittgenstein óspar á slíkar yfirlýsingar, þegar sá gállinn var á honum), en líta má einnig á hana sem eins konar forspjall að hinni eiginlegu heimspekilegu rannsókn. Sem slíkt hjálpartæki verðskuldar hún efa- laust meiri athygli og jákvæðara mat af hálfu marxista en þeir hafa hingað til veitt henni. Þögn Þorsteins um þessa hluti stafar þó greinilega ekki af andúð á heimspeki hins eðlilega máls, því að víða kemur fram, að har.n hefur tileinkað sér ýmis sjónarmið hennar — t d. segir hann á bls. 180: „merking orðs er fólgin í allri notkun þess í daglegum umsvifum manna eða útistöð- um.“ Ástæðan er frekar önnur: væri farið nánar út í innri aðgreiningu engilsaxneskr- ar heimspeki og óleyst vandamál hennar, yrði erfiðara að lýsa henni sem þeirri op- inberun, er Þorsteinn annars vill gera úr henni. Síðari hluti bókarinnar er með nokkuð öðru sniði en hinn fyrri: í honum eru færri lokleysur og fleiri fróðleiksmolar (t d. í köflunum um ógöngur tvíhyggjunnar), því að höfundur heldur sig hér meira að ákveðnu viðfangsefni og gerir því betri skil. Hér gefst ekki rúm til að ræða nánar um einstök efnisatriði, en þó er rétt að gera einu hærra undir höfði en öðru: spurningunni um það, að hverju og hve miklu leyti marxisminn sé efnishyggja. Þorsteinn aðgreinir ýmsar merkingar þessa síðasttalda hugtaks og tengir tvær þeirra við marxismann: annars vegar frumspeki- lega efnishyggju, sem hann segir Marx og Engels hafa boðað (bls. 116), hins vegar sögulega efnishyggju, sem hann telur, grunnfærnislega en þó „nytsama tilgátu“ og skilgreinir svo á bls. 118: „Hún er í 174
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.