Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1981, Page 21

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1981, Page 21
Hauströkkriðyfir mér hjúfurregn og í skini náttháls og dagmána getur það sem við sjáum orðið húmgrœnt ogsólmisturblátt. I hverju ljóðinu eftir annað rekumst við á línur, orð og hugmyndir sem vísa fram og aftur um veröld bókmennta og menningarsögu. Enginn getur skilið Kuml á heiði, Á Hvalsnesi eða Endurfundi til hlítar nema sá sem á íslensku að móðurmáli, engum öðrum segja orðin „legg í lófa karls“ alla söguna. En við Aríel, Rembrandt, Tunglskinssónötuna, Dauðann og stúlkuna, eplið rauða, loga hins svipanda sverðs og leiðina að lífsins tré, blysin sem nálgast grasgarðinn, einhyrning eða hjört með kross milli hornanna kannast fleiri. Og ljóð eins og Lindin t mónum, Skuggar og mörg önnur leiða okkur á spor fornra heimspekinga sem voru að velta fyrir sér eðli skáldskapar, gildi og raunveruieik hluta og hugmyndar, fyrirmynd og eftirlíkingu, hugtökum eins og m'tmesis og kátharsis. En í fullu samræmi við yrkisefni og viðhorf skáldsins hefur skáld- skaparaðferð þess breytt formgerð og yfirbragði ljóðanna, þó að í Laufum og stjómum sæist glöggt hvert stefndi. Ljóðin í Hauströkkrinu yfir mér eru lofsöngvar til alls sem reynslan kennir okkur á langri leið að sé eilíft og fagurt í lífinu og á jörðinni, þess virði að verja það og lofsyngja þrátt fyrir allt, til fegurðar og góðvildar sem er mest af öllu og mun lifa allt í rangsnúnum heimi. En lífið sjálft getur verið svo nakið og varnarlaust, fegurð náttúrunnar svo viðkvæm og hverful og hugurinn sem skynjar það svo misháður angurværð og gleði á hverrri tíð þegar sandurinn í stundaglasinu fer að renna hraðar, að tjáningu reynslunnar hæfir best einföld samþjöppun hinna innhverfu, lýrísku stefja. Nú eru ljóðin styttri en áður, hljófærið oftast lægra stillt. Vefur rímskrúðsins er horfinn og stefnt að galdri einfaldleikans, þó að rímið njóti réttar síns þar sem við á og ljóðstafirnir kallist á að fornum hætti og ráði miklu um hrynjandina. Ljóðin lifa og anda af því að fjötrar listrænnar formskynjunar eru löngu orðnir gagnsæir. Markmiðið er æ færri orð, hnitmiðaðra form, skýrari myndir sem dýpka hugsun og skynjun skáldsins og laða hana skýrar fram en áður. í einu ljóðinu í Laufum og stjömum talar Snorri um „heim manns á hvörfum milli tveggja heima“. Þess sér víða stað að hann finnur aldurinn færast yfir. Hauströkkrið yfir honum er allt í senn: hauströkkrið sjálft, hauströkkur lifsins og hauströkkrið í heiminum. Það heillar í fegurð sinni, en nægir honum ekki. Rökkrið og aldurinn hafa skerpt fegurðarskyn hans og vekja með honum þrá, minningu og söknuð. En jafnframt þráir hann nýtt líf, nýja reynslu, upprisu vorsins, skáldskaparins og náttúrunnar sem fyllir höndina friði og þrótti. Hon- um er ekki alltaf bjart fyrir sjónum. Margt hefur valdið honum vonbrigðum. Gildismat samtíðarinnar er honum framandi. Hann er gestur veruleika sem 139
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.