Tímarit Máls og menningar - 01.06.1981, Qupperneq 98
Tímarit Má/s og menningar
Kirkjan getur ekki lokað augunum fyrir þeirri staðreynd að aðeins 2% landeigenda
eiga 60% alls lands, 98% eiga 30% landsins; að meðan 8% Salvadorbúa fá 50% af
þjóðartekjum í sinn hlut lifa 3 milljónir landa þeirra á minna en 10 dollurum á
mánuði og aðeins 16% vinnufærra manna eiga kost á öruggri atvinnu allt árið
Skömmu áður en hann var drepinn gaf hann eftirfarandi yfirlýsingu:
Kirkjan hlýtur að taka afstöðu með því fátæka fólki sem hér býr. Ég mun sjálfur
berjast þangað til allir landar okkar eru orðnir frjálsir.
Lögfræðiaðstoðina stofnsetti hann í því skyni að hjálpa þessu fólki að verja rétt
sinn. Hugrekki og kristileg köllun Romero erkibiskups kostaði hann lífið.
Dómarinn sem annaðist opinbera rannsókn á morði erkibiskupsins, Otilio
Ramírez Amaya, bar fyrir dómstólnum að morðið hefði verið framið af örygg-
issveitunum með vilja og vitneskju hersins og herforingjastjórnarinnar. Þegar
sýnt var hverjar niðurstöðurnar yrðu sátu öryggissveitirnar um lif dómarans,
hann komst naumlega undan morðárás og varð að flýja land. Athyglisvert er að
til þessa dags hefur enginn verið dreginn til ábyrgðar vegna morðs erkibisk-
upsins.
Því miður er mál Romero erkibiskups ekkert einsdæmi. Margir trúarleiðtogar
hafa verið pyndaðir, ofsóttir og teknir af lífi vegna þeirra stofnana sem þeir þjóna
og vegna stuðnings þeirra við fátæka alþýðu. Á tímabilinu 5. janúar til 10.
október 1980 voru 28 yfirmenn kirkjunnar eða aðrir starfsmenn drepnir (þ. á m.
erkibiskupinn) og 21 fangelsaður, gerðar voru 14 sprengjuárásir, 41 vélbyssuárás
og 18 vopnaðar árásir á kirkjur, trúarsetur, kirkjuskóla og aðrar trúarstofnanir,
15 sinnum hafa slíkar stofnanir verið rændar og 33 sinnum teknar herskildi.
Auk Mannréttindanefndarinnar og Lögfræðiaðstoðarinnar sendu aðrir hópar
dómstólnum vitnisburði, munnlega og/eða skriflega, þ. á m. Amnesty Inter-
national, Alþjóðasamband lýðræðissinnaðra lögfræðinga, bandarísk heilsu-
gæslunefnd um E1 Salvador, E1 Salvador-nefnd spænska kirkjuráðsins. Norð-
urameríska ráðið um málefni Rómönsku Ameríku (NACLA), Áætlunarráð
kirkjunnar um samskipti og aðgerðir meðal Ameríkurikja (EPICA) o. fl.
Meðal annarra sem báru vitni fyrir dómstólnum má nefna:
1. Fulltrúa bændasamtaka, verkalýðsfélaga, trúarsamtaka, pólitískra hópa,
stéttasamtaka og háskólastofnana í E1 Salvador.
2. Fulltrúa lýðræðislegu byltingarfylkingarinnar (Frente Democrátio Revolucio-
nario), heildarsamtaka allra pólitískra afla sem eru andvíg herforingja-
216