Tímarit Máls og menningar - 01.06.1981, Síða 71
Bókmenntir gegn gulri pressu
með því án þess að Ijúga beinlínis. Best gæti ég trúað að rannsóknir á því
tungumáli sem fjölmiðlar og valdastofnanir í nútímasamfélögum beita myndu
staðfesta mynd Bölls í öllum höfuðatriðum.
Þó að herferð Wallraffs sé farin að bera einhvern ávöxt, er ekki þar með sagt
að Springer sé að þrotum kominn. Til þess er staða Bild alltof sterk. Wallraff og
margir með honum hafa stundum verið að hafa uppi kröfuna um þjóðnýtingu á
eigum Springers. Það er í raun krafa um að Bild verði bannað, sem mér virðist
ekki vera vænleg til árangurs. Ætli verkalýðshreyfingin að stuðla að því að
meðlimir hennar losni úr hugmyndafræðilegum greipum Bild, verður hún að
þróa sína eigin valkosti, sína eigin fjölmiðla (vel að merkja ekki „vinstrisinnað“
Bild, þvi slíkt fý'rirbæri er óhugsandi). Það á auðvitað við á Vesturlöndum
öllum og þ. á. m. Islandi, en er sérdeilis nærtækt vandamál í V-Þýskalandi og
Bretlandi, að borgaraöflin hafa töglin og halgdirnar í fjölmiðlaheiminum. Hin
pólitiska barátta gegn Bild og viðlíka fyrirbærum felst m. a. i þvi að reyna að fá
verkalýðshreyfinguna til að skapa sinn eigin vettvang, án þess að treysta á
ríkisvaldið sér til hjálpar. I þeirri glimu myndi hún eiga trausta liðsmenn í
Heinrich Böll og Giinter Wallraff.
Tilvitnanir og athugasemdir:
1 Heinrich Böll: Die verlorene Ehre der Katharina Blum, oder: Wie Gewalt ent-
stehen und wohin sie fiihren kann, Köln 1974.
2 G.Wallraff: Der Aufmacher, Der Mann der bei Bild Hans Esser war, Köln 1977, og
Zeugen der Anklage, Die Bild Beschreibung wird fortgesetzt, Köln 1979.
3 H.Gerstenberger: Politische Kultur und Klasseninteressen in der Bundesrepublik
Deutschland, í safnritinu Uber den Mangel an politischer Kultur in Deutschland,
Wagenbach 1978.
4 Hugtakið hefur heimspekingurinn og félagsfræðingurinn Oskar Negt mótað.
5 B. Engelmann/G.Wallraff: Ihr da oben — wir da unten, Rowohlt 1976.
6 Tölurnar eru úr bókinni Bild-Ideologie als Ware, VSA 1979.
7 Sjá eftirmála Eckart Spoo við Uppsláttinn, s. 234.
8 J.Alberts: Massenpresse als Ideologiefabrik am Beispiel Bild, Fischer 1972.
9 T.W.Adorno: Keine Wiirdigung, s.7 í bókinni In Sachen Böll, Köln 1968.
10 Skv. R. Nagele: Heinrich Böll, Fischer 1976, s. 57.
11 Sbr. Nóbelsfyrirlestur Böllsí greinasafni hans Einmischung erwiinscht, Köln 1977.
12 Soren Schou: Bölls aktualitet, í handriti, s.275.
13 G.Lukacs: Lob des neunzehnten Jahrhunderts, sama rit og 9.
14 Rolf Michaelis, sjá sama rit og 10, s. 163.
189