Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1981, Page 51

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1981, Page 51
Bókmenntir gegn gulri pressn dæmis að taka hefur verið sýnt fram á að Bild-lestur er útbreiddastur meðal svonefndra „lægn“ félagslegra laga, 51% af lesendum blaðsins tilheyra verka- lýðsstétt, og er það 12 hundraðshlutum hærra hlutfall en hjá þeim dagblöðum sem fást í áskrift. Bild hefur dafnað mjög samfara þeirri einokunarþróun sem orðið hefur á vestur-þýskum dagblaðamarkaði; á 25 árum eftir stríð fækkaði blaðforlögum um helming, en þessi þróun virðist hafa stöðvast í bili, kannski vegna þess að dreifing staðbundinna blaða er nú með þeim hætti að þau keppa ekki lengur innbyrðis. Axel Springer, sem hefur það kostulega millinafn Caesar, er sjálfsagt orðinn jafnfrægur blaðakóngur og William Randolph Hearst, og jafn afturhaldssamur. Forlag hans er að vísu hlutafélag, en Axel kallinn á sjálfur meirihlutann og hann er stjórnarformaður fyrirtækisins. Árið 1975 drottnaði hann í þeirri stöðu yfir 120 þúsund starfsmönnum og velta fyrirtækisins nam 1,27 milljarði þýskra marka. Springer ræður næstum þriðjungi dagblaðamarkaðarins í Sambandslýð- veldinu; auk Bild á hann stærsta blaðið í Berlín, B.Z., og í Hamborg (Ham- burger Abendblatt), hann gefur út hið virðulega dagblað Die Welt (uppl. ca. 214.000), hann á tvö bókaforlög og útbreiddasta vikublað Þýskalands, Hör Zu sem kemur út í 4 milljónum eintaka. Springer hefur mikil afskipti af sínum ritstjórum og þeirri pólitísku linu sem birtist í blöðum hans. Sjálfur á hann það til að halda ræður og skrifa greinar, og jafnvel taka afurðir sínar saman í bækur, sem eru í þessum hálfupphafna áminningarstíl, blönduðum sterkum and- kommúnisma og minna einna helst á pólitísk skrif Matthíasar Johannessen. Afurðir Springer-hringsins eru mjög ódýrar, enda auglýsingar aðaltekjulindin, 600 milljónir marka koma þaðan árlega.' Auðvitað hættir fyrirtækið ekki undir neinum kringumstæðum á að svo auðug náma lokist. Það mun hafa verið um það leyti sem Berlínarmúrinn var reistur sem Springer tók að stýra blaðaflota sínum til orustu við heimskommúnismann, og yfirleitt allan sósíalisma. Þegar stúdentar fóru af stað á sjöunda áratugnum fengu þeir heldur betur orð í eyra hjá Springerpressunni. Júrgen Alberts hefur í riti um Bild8 bent á að aðferð blaðsins var í höfuðatriðum sú að neita lesendum sínum um hvers kyns upplýsingar um markmið stúdentanna um leið og þeir voru felldir inn í hegðunarmynstur sem sögð voru einkenna kommúnista, fasista og menntamenn. Stúdentarnir voru sýklar í þjóðarlíkamanum, sem Bild hafði einsett sér að uppræta í þágu lesenda sinna. Stúdentar svöruðu með margs kyns aðgerðum gegn Springerforlaginu. Þeir sökuðu Springer um að misbeita aðstöðu sinni og kröfðust þess að forlag 169
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.