Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1981, Síða 68

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1981, Síða 68
Tímarit Máls og menningar eins og Wallraff sjálfur blandar sér mismikið inn í það ástand sem hann lýsir. Sameiginleg er þeim tilhneigingin til að persónugera samfélagslegar afstæður, scm Wallraff hefur oft verið gagnrýndur fyrir. I fyrrnefndri grein andmælir Oskar Negt þeirri gagnrýni og bendir á að það er einmitt persónugervingin sem er eitt árangursríkasta bragð Bild. Að dómi Negts tjáir persónugervingin, rétt eins og tilhneigingin til að beita stereotypum, ósk um að samfélagið verði gagnsærra. A öðrum stað hefur hann orðað það svo að hér sameinist „afturhaldssöm ósk um að einfalda samfélagsafstæðurnar frelsandi þrá eftir að skilja þær“.30 Negt telur mikilvægt að sósíalistar reyni að andæfa vitundariðnaðinum á þessu sviði, og að sú sé ætlun Wallraffs. I Bild er persónugervingunni beitt til að gera samfélagsleg vandamál að einkamálum, ætlun Wallraffs er að sameina vonir og andófsafl hinna undirokuðu í persónu sem þeir geta fundið sig i. Hér má minnast stórskemmtilegrar frásagnar hans af Gerling-fyrirtækinu. Wallraff réð sig sem sendil og í einum matartímanum snaraði hann sér að borði forstjóranna í þessu nákvæmlega stigskipta fyrirtæki og heimtaði fínan mat og dýrustu veigar rétt eins og þeir. Húmorinn var sá að enginn vissi hvernig í ósköpunum ætti að bregðast við svo einstakri ósvífni, og undirsátunum var skemmt. Eftir að hafa birt frásögn sína, sem vakti talsverða athygli, hélt Wallraff fund með starfsfólki stórfyrirtækisins, þar sem margar faglegar kröfur voru mótaðar, en slíkt hafði ekki gerst áður á þeim bæ.}' Viðleitnin gagnvart Bild er sú sama. Vitni ákœr- andans er safn nokkurra frásagna af einstaklingum sem hafa orðið undir Bild- vélinni, en bókin inniheldur líka skýrar leiðbeiningar um hvað aðrir geti gert við svipaðar aðstæður. Það er fleira sem Wallraff hefur verið gagnrýndur fyrir, sem von er. íhalds- öflin hafa sagt að hann sé lélegur rithöfundur og að viðfangsefni hans eigi ekkert erindi i bókmenntirnar. I þau fjölmörgu skipti sem Wallraff hefur verið dreginn fyrir dómstóla hefur athyglin beinst alfarið að aðferðum hans en ekki því sem þær hafa leitt í ljós. Vinstrimenn hafa gagnrýnt hann fyrir að fást alltof mikið við undantekningartilvik og vekja þar með tálsýnir um að það séu bara einstaka þættir sem þurfi að lagfæra í samfélaginu, grundvallargerð þess þurfi ekki að hrófla við.52 Auðvitað hefur Wallraff orðið til þess að verkafólk hefur getað bætt aðbúnað sinn á einstaka vinnustöðum, og varla vilja menn harma það. Spurningin um undantekningartilvik og grundvallargerð er heldur alls ekki svona einföld. í verkum Wallraffs eru það þróunartilhneigingar eins og tilraunir auðmagnsins til að gernýta vinnuafl verkafólks, skortur á lýðræðis- hefðum í samfélaginu, samtenging pólitískra og efnahagslegra hagsmuna og réttlætingarerfiðleikar auðvaldsins eru í brennidepli. Þetta eru tilhneigingar sem 186
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.