Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1981, Page 69

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1981, Page 69
Bókmenntir gegn gulri pressu gegna lykilhlutverki í þeirri fyrirbyggjandi gagnbyltingu sem vikið var að í upphafi þessarar greinar, táknrænar fyrir sögulega þróun samfélagsins, síður en svo léttvægar undantekningar. Hvað Bild varðar er sami vandi á ferð. í evrópsku samhengi er svo „lélegt“ stórblað sjaldséð fyrirbæri, en blaðið hefur eins og fyrr var sýnt ofurvald á þýskum blaðamarkaði. Hugmyndafræðileg barátta gegn Bild er því frumnauðsyn fyrir sósíalíska hreyfingu í Sambandslýðveldinu. Auðvitað er margt í pólitík Wallraffs umdeilanlegt, en stundum virðist mega skýra svonefnda vinstrigagnrýni á hann út frá minninu um súru berin. Starf Wallraffs miðast við hina opinberu umræðu, og þá er blaðamennskan auðvitað heppilegt form. Hann reynir að draga ýmislegt laumuspil ráðamanna inn í hið opinbera sviðsljós, eins og þegar hann kom upp um tilraunir þýskra stórfyrirtækja til að koma á fót eigin löggæslusveitum í verksmiðjum sínum. Um leið reynir hann að snúa við hefðbundnum reglum borgaralegs samfélags, með þvi að gera það sem þar flokkast undir einkavettvang opinbert. Fróðlegar frásagnir hans af ritstjórnarfundum Bild, sem varða auðvitað samfélagið allt vegna þess stóra hlutverks sem Bild leikur í opinberri umræðu, flokkast t. d. undir einkavettvang Springer-forlagsins, það hafa dómstólarnir staðfest. Allt frá fyrstu verksmiðjufrásögnum sínum hefur Wallraff einmitt verið að reyna að gera framleiðsluvettvanginn opinberan. Hann tekur upp að nýju það vökula og gagnrýna hlutverk sem borgarastéttin í upphafi ætlaði sínum málgögnum. En eins og Habermas hefur lýst, hafa blöðin smám saman verið að glata þessu hlutverki eftir því sem þau hafa þróast úr málgögnum í neyslumiðla.” Bild er hámarkið í afskræmingu hins opinbera, borgaralega vettvangs. I baráttunni við Bild dugir auðvitað skammt að segja eins og sumir islenskir sósíalistar þegar þeir voru að andæfa sjónvarpinu „aldrei horfi ég“. Einhvern veginn verða menn að skýra aðdráttarafl Bild öðru vísi en með heimsku lesendanna. Flestar slikar skýringartilraunir telja styrk Bild fólginn í hversu vel blaðið notfærir sér þá vanmáttartilfinningu sem er útbreidd meðal launþega í jafn stóru auðvaldssamfélagi og þvi þýska. Hér selji Bild mönnum afþreyingu: Bent er á að fréttir blaðsins séu langflestar víðs fjarri heimi vinnunnar um leið og þær sýni möguleika einstaklingsins til að „hefja sig upp yfir“ þann heim, og að blaðið forðist langar frásagnir úr heimi stjórnmálanna, sem flestum finnst hvort eð er að þeir geti engin áhrif haft á, en sýni stjórnmálamennina sem einstaklinga „eins og okkur hin“.54 Það er vísað til þess að persónusögur blaðsins birti á sinn hátt þrá eftir útópísku samfélagi þar sem hver einstaklingur skiptir máli, og þær séu raunar algengasta bragð vitundariðnaðarins til að ná tökum á ímyndunarafli vinnandi fólks.55 Greiningar í þessum anda bjóða annarri 187
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.