Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1981, Page 77

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1981, Page 77
Síðasta ítrrœðið segir (sposkur): „Hvað, ert þú nú orðinn prestur?“ — „Hann verður að minnsta kosti að bíða þangað til þú ert kominn á staðinn með ljósmyndara.“ Eg tek símaskrána i flýti og fletti upp á Kunde. Þar eru fjórir skráðir með því nafni. Eg hringi í þá eftir röð úr næsta herbergi. Eitt númerið er á tali. Það hlýtur að vera hann. Hann er að tala við Klampf. Ég hringi á læknavaktina undir fölsku nafni, því ef upp kemst að ég hafi „eyðilagt söguna“ verð ég ekki mosagróinn hér. Þegar Klampf fær loks að vita hjá nágrannakonu að kominn sé bíll frá læknavaktinni segir hann bara: „Fjandinn hafi það!“ Viktor Löhlein, frétta- stjórinn, sem á leið þar framhjá, bandar frá sér og segir við Klampf: „Vertu ekki að taka þér þetta svona nærri. Ég þekki þessa náunga. Þeim er ekki treystandi, það er alltaf sama sagan, það verður aldrei úr neinu.“ Þessi harka hjá Klampf er svosem engin sérstök undantekning. Andrúms- loftið býður upp á slíkar aðfarir. Almenn framkoma á skrifstofunni er beinlínis á þessum nótum. Schwindmann heyrir til dæmis um 68 ára gamla konu sem hefur fyrirfarið sér með því að steypa sér niður af 7. hæð í háhýsi og felur Klöpfer verkefnið með þessum orðum: „Við þangað. Þú sérð um kerlinguna sem hoppaði." Eða þegar sjálfsmorð dóttur Barzels vekur upp héraðaríginn og farið er að velta vöngum yfir því hvernig megi tengja þennan atburð við Hannover. Þegar því verður svo engan veginn við komið segir einn af yngri fréttariturunum dapurlega: „Það var leitt að hún skyldi ekki gera þetta í Hannover." Eða: Hai segir við Klampf: „Tveir krakkar voru að skjóta hvor á annan með skammbyssum." Klampf: „Bravó, stórfínt, dauðir?!“ Hai: „Nei, bara illa særð- ir.“ Jafnvel Gisela Schönberger sem er ekki nema tvítug og er sú yngsta á ritstjórnarskrifstofunni bregst kuldalega og miskunnarlaust við þegar um mannslíf getur verið að tefla. Annars hefur hún ekki enn tileinkað sér það viðhorf sem hér ríkir. Henni mistekst oft að gefa sögum sínum réttan blæ, og hún verður þá að umskrifa þær aftur og aftur og Schwindmann setur margsinnis ofan í við hana í viðurvist allra starfsfélaganna. Einu sinni segir hún íhugandi: „Að hugsa sér, nú er ég búin að vera hér í nákvæmlega eitt ár. Ekki hefði mig órað fyrir því fyrir þremur árum. Þá skrifaði ég ritgerð á stúdentsprófi um klækina og lygarnar hjá BILD, og í dag sit ég hér og er sjálf að óhreinka á mér hendurnar með því að taka þátt í þeim.“ Hún vill komast burt héðan til að ljúka námi. En það segja líka fleiri hér á staðnum. Ef til vill gerir það þeim starfið bærilegra. 195
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.