Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1981, Page 78

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1981, Page 78
Tímarit iWáts og menningar Michael Bartz á í baráttu við samvisku sína, og Gísela Schönberger, sem ennþá kemur manni næstum barnslega íyrir sjónir, reynir að tala um fyrir honum með einstöku harðlyndi. Bartz hefur rannsakað sögu um byssuóðan ungan mann sem skotið hefur á nokkra hunda í nágrenni Hannover og þar með stefnt í hættu lífí og limum barna sem þar voru að leik. Sagan hefur þegar legið í nokkra daga á skrifborði Schwindmanns. Honum fannst ekkert púður vera í henni — sennilega með réttu, miðað við hans eigið sjónarmið — og hann lét hana liggja, tók hana svo einn daginn fram ásamt öðrum völdum greinum upp á 25 línur (löng grein), en frestaði henni síðan enn á ný. Svo hringir gömul móðir piltsins með skotvopnin í Bartz. Hann er alveg miður sin eftir samtalið, þar sem hann hafði reynt árangurslaust að sefa gömlu konuna. „Henni er alvara um að hún muni gera sjálfri sér mein ef þetta verður birt um son hennar. Mér finnst þessi saga ekki vera þess virði. Við ættum að sleppa henni.“ Hvað gerir Gisela Schönberger þá? Hjálpar hún Bartz? Nei, hún segir: „Þú ættirað senda afrit afgreininni heim til hennar strax í dag. Ef þú ert heppinn þá fýrirfer hún sér á einhvern mjög frumlegan hátt: tekur inn eitur og veður út i tjörn í tunglskini eða eitthvað svoleiðis. Þá hefurðu loksins stórkostlega sögu á morgun.“ Bartz getur ekki hlegið að þessu. „Eg verð víst að grennslast eftir því hjá Schwindmann hvort við getum dregið greinina undan.“ Hann kemur aftur. „Við drögum aldrei neinar fréttir undan, á hverju sem gengur,“ hafði Schwindmann sagt. Og: „Hvað varðar okkur um sjálfsmorð þessarar konu?“ „Hann vill birta greinina, ég gerði allt sem ég gat...“ Og í raun og veru er fargi létt af Bartz. Að vísu hefur honum ekki orðið neitt ágengt, sagan verður birt, og þar með er hætta á að það sem Bartz óttaðist svo mjög aðeins nokkrum mínútum áður verði að veruleika. En nú er það ekki lengur maðurinn Bartz sem ber ábyrgðina, heldur Schwindmann, yfirmaður hans — nei, öllu heldur stefna blaðsins, hin heilaga skylda. Fréttir má aldrei þagga niður. Og enda þótt Bartz reki sig daglega á það eins og allir hinir að BILD er sífellt að afbaka og fela fréttir tekst honum að mæna í blindni á þessa háleitu hugsjón. Eg trúði — það var fyrirskipun: Lífsskoðun og fyrirskipun sem stríðir gegn henni, það var einnig sú blanda sem menn létu sér lynda í Þriðja ríkinu. (Að lokum var sögunni samt sleppt — hún þótti of ómerkileg). Ásthildur Egilson þýddi. 196
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.