Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1981, Qupperneq 118

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1981, Qupperneq 118
Tímarit Máls og menningar Það kom fram í 1. kafla greinarinnar að gagnrýni á skilvinduhlutverk og innrætingu skólans er nauðsynlegur liður í sósíalískri gagnrýni en það er ekki nóg með að hún sé ófullnægjandi ein og sér, heldur er hún einnig beinlínis misvísandi. Markmið sósíalískrar baráttu er ekki að fólk eigi sem greiðasta leið á milli stétta heldur að afnema stéttaskiptingu og kapítalíska verkaskiptingu. Rangt er að skoða hina borgaralegu innrætingu eina og sér; þar með er hinn huglægi þáttur stéttabaráttunnar slitinn úr tengslum við efnislegan grunn hennar. Líta ber á hugmyndalega innrætingu skólans í ljósi hlutverks hennar við „framleiðslu" vinnuafis. Grundvallargagnrýni sósíalista beinist gegn því að kapítalisminn gerir mannfólkið að vinnuafli auðmagns. Vinna sem aðrir ráta og fá afraksturinn af verður þungamiðjan i lífi okkar og markar alla aðra þætti. Gagnrýni á kapítalískt skólakerfi felst í því að afhjúpa hvernig það á ríkan þátt í að gera okkur að vinnuafli auðmagns og kúgar viðleitni okkar til sjálfstæðs þroska. Gagnrýni á kapítalíska framleiðsluhætti er forsenda þess að við skiljum af hverju og á hvern hátt kapítalískt skólakerfi afskræmir þroska okkar. Að minu viti eru vinsamleg viðhorf sósíalistanna til menntunar til marks um það að auðskipulagið hafi enn einu sinni komið aftan að þeim. Við hljótum að gera okkur í hugarlund að í sósíalismanum verði þekkingarmiðlun með allt öðru hætti; órofið frá framleiðslunni og bóklegir og verklegir, andlegir og líkamlegir þættir verði að einni heild. I auðskipulagi er menntun hins vegar tæki til að slíta þessa þætti í sundur og til að búa vinnuaflið sem best undir arðrán. Þróun arðránsins, þróun framleiðsluferlisins er hreyfiafl skólans. „Skólaumbætur“ eru einatt tæki til lausnar á aðkallandi vandamálum auð- magns; þær geta jafnframt í stöku tilviki og/eða að afmörkuðu leyti bætt stöðu verkalýðs frá þvi sem áður var. Séð frá sósíalísku sjónarmiði er umbótunum markaður þröngur bás þar sem þær geta ekki brotist undan þvi kerfi sem fjötrar verkalýð við einhæfa vinnu fyrir aðra. Umbæturnar beinast ávallt að því að aðlaga verkafólk að hlutskipti sínu, því hlutskipti sem ákvarðast af auðmagns- þróun og inniheldur m. a. þá langtímatilhneigingu að afhæfa líkamlega vinnu og beita andlegri vinnu til að tryggja þá afhæfingu. Sú þróun gerir vinnuna ekki einungis viðbjóðslega heldur þrýstir hún launum niður og brýtur á bak aftur árangur verkalýðsbaráttu. Flestar skólaumbætur gegna því hlutverki að liðka til fyrir þessa þróun á einn eða annan hátt, og nýjustu islensku dæmin, s. s. samræming framhaldsskólanna, stefna eindregið í þá átt. Þótt skólakennurum þyki það horfa til framfara að skólaganga lengist, taki meira tillit til nemandans sem einstaklings o. s. frv., er það engin blessun fyrir verkalýðinn að vinna æ einhæfari og meira slítandi störf, búa við vaxandi óvissu 236
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.