Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Blaðsíða 16

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1982, Blaðsíða 16
Tímarit Máls og menningar leikhúsi getur einhver kraftur brotist skyndilega fram, líkt og fyrir tilviljun, og hver hugmyndin annarri betri hrannast upp með eldingarhraða. En slíkt lán er sjaldséð og það liggur í augum uppi að leyfi skipulagið ekki nema þriggja vikna æfingar á hverri sýningu kemur það niður á öllum þáttum sýningarinnar. Þá er ekki hægt að gera listrænar tilraunir eða taka einhverja áhættu sem máli skipti. Leikarinn og leikstjórinn verða að skila vörunni á tilsettum tíma, annars verða þeir reknir. Auðvitað er hægt að fara illa með tímann og eyða mánuðum í tilgangslaust málæði og æfingar sem ekki skila neinum árangri. Eg hef séð Shakespeare-sýningar í Rússlandi sem höfðu verið undirbúnar með umræðum og rannsóknum í tvö ár en voru þó á engan hátt betri eða frumlegri en það sem nýstofnaður leikflokkur getur hróflað upp á fáeinum vikum. Ég hitti þar einnig leikara sem æfði hlutverk Hamlets í sjö ár en fékk þó aldrei að leika það sökum þess að leikstjórinn dó áður en kom að frumsýningu. Á hinn bóginn er staðreynd að rússnesk- ar sýningar sem hafa verið æfðar árum saman eins og í leikhúsi Stanislav- skýs komast á það stig sem við látum okkur nægja að dreyma um. Berliner Ensemble, leikhús Brechts, notar tímann einnig vel; þar er hver ný sýning æfð í u. þ. b. ár og nú getur leikhúsið sýnt fjölmargar frábærar sýningar hvenær sem er — fyrir fullu húsi. Jafnvel frá hákapítalísku sjónarmiði er leikhúsrekstur sem þessi mun skynsamlegri en sá sem viðgengst þar sem leikhúsin eru í höndum einkaaðila og algengt er að rándýrar sýningar kolfalli. Á Broadway og í London eru sýningar sem falla miklu fleiri en þær sem ganga og skila gróða, en beinharðar tölur virðast samt ekki nægja til að grafa undan trú manna á þetta fyrirkomulag. Listrænar afleiðingar þessa ástands eru alvarlegar. Skipulagið er mis- kunnarlaust, lífsbaráttan hörð og menn verða að vera tilbúnir til að beita sjálfa sig og aðra harðneskju, ætli þeir að fleyta sér áfram. Á Broadway verður hver einasti listamaður, hvort sem hann er leikari, tónlistarmaður, leikmyndateiknari eða ljósamaður, að eiga umboðsmann sem gætir hags- muna hans því að þarna eru menn látlaust í hættu. Manni þætti ekki óeðli- legt að þetta ástand fæddi af sér andrúmsloft ótta og öryggisleysis, en reyndin er sú að á Broadway ríkir hástemmd glaðværð með yfirmáta til- finningasemi og vinsemd á alla bóga og er það bein afleiðing af þeirri stöðugu spennu sem menn búa við. Oneitanlega ber þessi yfirborðslega og hrjúfa framkoma vott um skort á tilfinninganæmi og maður finnur sjaldan það hávaðalausa öryggi sem er forsenda þess að þora að tjá sig af einlægni. Á Broadway eru menn ófeimnir við að tjá sig hispurslaust en það á ekkert skylt við það næma gagnkvæma trúnaðartraust sem skapast af langri við- kynningu og náinni samvinnu. Bandarískir leikarar öfunda breska leikara af þessum sérstaka næmleika og þess vegna reyna þeir oft að temja sér 382
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.