Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1983, Page 53

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1983, Page 53
Sólarhringur í draumi og vöku tveir krakkar á leið í skólann við hlið foreldra sinna. Ahmad-Hossein var sá eini sem ég gat rekist á, á þessum tíma dags. Eg hélt áfram ferð minni og kom í hverfi hinna ríku. I hvert skipti sem ég fór þar um, fannst mér ég vera kominn í bíó að horfa á kvikmynd. Ég gat aldrei skilið hvernig fólk gat borðað og sofið í svona hreinum húsum, hvernig það talaði, hvernig það klæddist. Geturðu, til dæmis, ímyndað þér hvernig þú lifðir í móðurkviði? Geturðu gert þér grein fyrir því hvernig þú borðaðir í móðurkviði? Auðvitað ekki. Ég var eins og þú. Ég skildi þetta ekki. Þrír skólastrákar horfðu í búðarglugga. Ég staðnæmdist fyrir aftan þá. Þægilegan ilm lagði af vel greiddu hári þeirra. Ég fór ósjálfrátt að þefa af hálsi eins þeirra. Þeir sneru sér þá við og horfðu reiðilega á mig. Þeir færðu sig í burtu og sögðu, að það væri vond lykt af mér. Eg sá spegilmynd mína í rúðunni. Hárið á mér var svo sítt og tætingslegt, að það huldi alveg eyrun, það var eins og hárkolla. Skyrtan mín var svört af skít og við hálsmálið skein í sólbrenndan líkama minn. Fætur mínir voru skítugir og hælarnir allir sprungnir. Mig langaði til að kála þessum ríkisbubbasonum. En var það þeim að kenna, að svona var ástatt fyrir mér? Náungi kom út úr búðinni og stjakaði við mér: „Komdu þér í burtu. Ég get ekki gefið þér nokkurn skapaðan hlut svona snemma dags, þegar ég hef ekki unnið mér inn grænan túskilding.“ Maðurinn stjakaði aftur við mér og sagði: „Sá er kaldur,“ því ég sagði ekki orð og stóð kyrr í sömu sporunum. „Ég er ekki betlari.“ „Ég biðst margfaldlega afsökunar. Þú ert kannski einhver merkis- maður?“ „Nei, ég er ekki neitt, en ég er að skoða.“ Hann fór aftur inn í búðina, en ég hélt leiðar minnar. Það glampaði á brot úr gangstéttarhellu í göturæsinu. Ég var ekkert að tvínóna við það, heldur tók brotið upp í flýti og kastaði því af öllu afli í búðargluggann. Hann fór í mask. Mér létti við brothljóðin. Ég tók til fótanna og hljóp hraðar en nokkru sinni fyrr. Þegar ég hafði farið yfir nokkrar götur, rakst ég á Ahmad-Hossein, og áttaði mig á því, að ég var kominn langt frá búðinni. Ég komst aldrei að því hvar hann bjó. Ghassem sagði, að Ahmad- 523
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.