Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1983, Síða 72

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1983, Síða 72
Tímarit Máls og menningar hvolfist yfir mann og birtist þá iðulega í óvæntum og óhuggulegum myndum.12 Nú verður enn ljósara hvernig módernismi Svövu fellur saman við úttekt hennar á reynslu nútímakonunnar, sem hún telur greinilega að búi oft við algjöra firringu, útilokuð frá frjórri og sjálfstæðri samfélagsþátttöku. Omeð- vitaðar um hlutskipti sitt lifa margar konur Svövu lífi sínu í klóm öryggis og vana, í fangelsi hinna dauðu hluta. En uppgjör við þetta líf er þó aldrei langt undan, hvort sem úr því verður eða ekki, umbylting ýmist sökum ytri afla eða vegna hræringa í innra lífi konunnar, eins og sjá má í „Tiltekt". Konan fer augljóslega úr jafnvægi við að skeyta saman myndum úr lífi sínu og öldungis er óvíst að hún kæri sig um það uppgjör sem fælist í að koma lagi á safnið. Ef myndasafnið endurspeglar í vissum skilningi hugarheim hennar, þá rekst hann óþyrmilega á þá sléttu og felldu húsmóðurmynd sem hún hefur ætíð sýnt öðrum. En búi sögur Svövu yfir existensíalískri vídd má ætla að efnismeðferð höfundar takmarkist ekki við „kvenlega reynslu“, heldur geti átt sér víðari skírskotun í líf nútímamannsins. Sagan „Ferðamaður“ virðist staðfesta þetta. Þar er karlmaður í sjónmiði en sagan reynist að allri formgerð náskyld kvennasögum Svövu; á ferðalangnum brenna tilvistarspurningar sem við þekkjum úr þeim sögum, spurningar um ytri ímynd og innri veruleika. Þegar Svava tekur að grafast fyrir um tilvistarlögmál persóna sinna birtist ætíð þessi árekstur vitundar og ytri veruleika, þessi lífsháski í hversdegin- um, og jafnframt tekur raunsæislegur grunnur frásagnarinnar að riðlast og dulari sögusvið koma í ljós. „Sund“ er einkar gott dæmi um þetta, en seinni hluti þeirrar sögu er hlaðinn þeirri frásagnarspennu sem er svo dæmigerð fyrir módernismann, spennu milli þess sem gerist á ytra borði „í raun og veru“ og þess sem gerist fyrst og fremst í vitund persónunnar. Þessi formgerðareinkenni má finna í eldri sögum Svövu, t.d. í „Séð í spegli" í Tólf konum og jafnvel í fyrstu sögu þeirrar bókar, „Það var barn í dalnum“, eins og „Sund“ skilur hún lesandann eftir uppfullan af spurningum um hvað raunverulega hafi gerst. Með táknum og stórmerkjum Furðusögur Svövu hafa löngum vakið mesta athygli verka hennar, og bera væntanlega uppi orðstír hennar sem nýsköpunarhöfundar í prósa. Þær hafa raunar fengið afar misjafnar undirtektir, oft hlotið mikið lof, en stundum mætt algjöru skilningsleysi. I umræðunni hefur það oft viljað gleymast hversu ólíkar þessar sögur eru innbyrðis. Hin kunna „Saga handa börnum“ er t.d. fremur einhlít táknræn úttekt á goðsögninni um húsmóðurina N. 542
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.