Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1983, Side 77

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1983, Side 77
Að gefa í boðhxtti Konan flýtir sér „út undir bert loft“, í leit að sjálfri sér og lífrænum tengslum jafnt við umhverfi sitt og sína nánustu. Ferð þessi minnir á ferð konunnar í „Kona með spegil“ (Veizla undir grjótvegg)'b — En bilið milli annars vegar sjálfumleika og hlutverks, hins vegar vitundar og ytri veru- leika, verður ekki brúað. Konan hlýtur að enda heima í stofu aftur og ferðin líður í hring eins og dagar og ár þessarar konu virðast dæmdir til að gera. Hún „horfði inn í rökkvaðan krókinn klæddan innan þykkum flauelstjöld- um. Þetta var áfangastaðurinn.“ (96) Lokaorð Þótt ég hafi gerst langorður um Gefið hvort öðru . . ., sem hlýst af því hversu mikilvæga ég tel þessa bók, munu gildi hennar og staða ekki verða fullmetin svo skömmu eftir útgáfu verksins. Eins og ég minntist á í upphafi tel ég samt að sögurnar myndi beint framhald af fyrri sagnagerð Svövu; það er eins og þrátt fyrir allt hafi alls ekkert gat myndast í rithöfundarferli hennar. Sögur þessar sýna jafnframt að Svava hefur öldungis ekki staðnað; ég tel afar vafasamt að nokkur íslenskur samtímahöfundur taki henni fram í smásagnagerð, og ánægjulegt er að þessi gæðabók birtist einmitt nú, því vinsældir smásögunnar virðast hafa færst í aukana á síðustu árum. Viðfangsefni Svövu eru í stórum dráttum hin sömu og fyrr. Langoftast snúast sögurnar um konur sem dvelja undir oki þjóðfélagshefða í inni- lokaðri veröld þar sem öryggið og þægindin reynast vera gröf. Þeim ber að gefa möglunarlaust af sjálfum sér og lífi sínu, og þiggja um leið það sem þeim er gefið, ganga fúsar í hlutverk þau sem þjóðfélagið ætlar þeim. Þó svo margt hafi áunnist í kvennabaráttu síðan Svava birti fyrstu sögur sínar á þetta efni enn fullan rétt á sér (má þó vera að einhver tímaskekkja sé í sögunum um heimilisfastar húsmæður, því konur úr öllum stéttum taka æ meiri þátt í athafnalífi utan heimilanna, en eftir sem áður eru þæra afar valdalítill hópur). Þetta er raunar efni sem mjög auðveldlega hefði getað staðnað, farið að endurtaka sjálft sig, ef Svava hefði við útmálun þess einkum beitt aðferðum raunsæisprósa. Módernisminn býður upp á fjölbreyttari frásagnaraðferðir og hann gerir Svövu kleift að nálgast efnið eftir sífellt nýjum og áhugavekjandi leiðum. Athyglisvert er að lengstu smásögur sem Svava hefur látið frá sér fara eru aðeins 12 síður og flestar eru sögur hennar töluvert styttri. Ekki verða þær efnisminni fyrir vikið, því að þær bera mörg höfuðeinkenni ljóða, sam- þjöppun, hnitmiðun, auðugt myndmál og táknvísi. Hver setning er úthugs- uð og unnin, enda á Svava það sammerkt með örfáum öðrum íslenskum 547
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.