Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1983, Page 110

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1983, Page 110
Tímarit Máls og menningar er lokaatkvæðið greinilega skráð sem á- hersluatkvæði, til að gefa til kynna að um spurn sé að ræða. Þannig fríar skáldið sig frá notkun spurningarmerkis og kemur í veg fyrir að hrynjandin stöðvist. Merkjasetning væri hér ryþm- anum tálmi. Þetta er því inngangur í formi ljóðs, forskrift sem óþarft er að endurtaka þeg- ar fram í sækir. En jafnframt bendir ljóðið í átt til táknrænnar kvæðagerðar (Symbolisma). Ekki einvörðungu til þeirrar tegundar hennar sem bundin er við myndhvörf, líkingar og kenningar, heldur hinnar þar sem kafað er niður í orðið sjálft, stafróf þess og feril í textan- um. Sú tegund á sér upphaf í „Sérhljóð- um“ Rimbauds, gengur sem rauður þráður gegnum ljóðarannsóknir Mallar- més, tengist formgerðarstefnunni og nær ef til vill hámarki í „Endimörkum ritunar“ Rolands heitins Barthes. Það er til slíkra rannsókna á möguleikum texta og ljóðaritunar sem Thor skírskotar. Reyndar kemur það fram í öðrum skáld- verkum hans. Síðar bregður fyrir í bálkinum berg- máli þessa inngangs sem leiðarstefi: Fugl á flótta undan uglu flaug hjá og: Fuglinn um nótt beið þín ugla alskyggnu auga baugur mána þvarr Skyldleiki ólíkrar menningar En Thor rær á önnur mið strúktúralískra fræða, eða eru það ef til vill kenningar Jungs? Alltént er það bundið innihaldi ljóðsins. Það má glögg- lega sjá í teikningunum, hvernig mynd- mál Arnar rokkar milli raunsærra nátt- úrulýsinga frá fjörðum og fjöllum Is- lands og táknmynda sem einna helst líkj- ast helgilist Maya frá for-kólumbískum tíma. Thor skynjar þessi skipti mætavel og dregur saman í einhverjum merkustu versum bókarinnar: Bunraku brúðuleikur í ljósi kúptu skuggar titra sem tröll á þili Bunkast saman brúður þrjár og maður munki líkur frá Zurbarán að baki að galdra líf Sem fyrr er allt slungið rími samstafa. Það sem er þó öllu eftirtektarverðara, eru þær sönnur sem skáldið færir á skyldleika táknmáls gjörólíkra þjóða. Til er listrænn samnefnari til túlkunar á mannlegum örlögum, hvort heldur eru íslensk, japönsk eða spænsk. Uppspretta ímyndunarafls og aðferða listamannsins, er ekki bundin landamærum. Mynd- breyting mannlegs harmleiks í listræna afurð lýtur svipuðum lögmálum hvar sem er í heiminum. Hin eðalborna list Tsigamatsu Monz- eamons, þessa Shakespeares Japana, var brúðuleikur. I meðförum snillingsins Josjída Bungoro, öðlast brúðurnar líf eins og „skuggar . . . sem tröll á þili“. Það er staðreynd að Monzeamon skóp harmleiki sína, m.a. „Astarsjálfsmorðin í Súezaki" og „Astarsjálfsmorðin í Ami- síma“, svo til strax eftir að atburðirnir höfðu átt sér stað. Það er og með harm- leikinn á Kili, þegar Reynistaðabræður 580
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.