Tímarit Máls og menningar - 01.11.1987, Side 57
Bréfið
andi kláðann í framfótunum og er búið að járna hann eður ei? Eg
bið yður, elsku mamma Jevdokía Fjodorovna, að þvo honum endi-
lega framfæturna með sápu sem ég skildi eftir á bak við helgimynd-
irnar, en ef pabbi er búinn með sápuna, þá kaupið meira í Krasnodar
og guð mun ekki yfirgefa yður. Eg get ennfremur lýst því að hérna
eru sveitir bláfátækar, bændurnir fela sig úti í skógi með hrossin sín
fyrir okkar rauðu örnum, hér er lítið um hveiti, það sprettur svo illa
að við bara hlæjum að því. Bændur sá rúgi og höfrum sömuleiðis.
Hér vex humall á spýtum svo það lítur mjög akkúrat út, úr honum
brugga þeir landa.
I öðrum línum þessa bréfs ætla ég að flýta mér að lýsa pabba mín-
um hvernig hann hjó í spað bróður minn Fjodor Tímofeítsj Kúr-
djúkov og það var fyrir ári síðan. Okkar rauða hersveit félaga
Pavlítsjenko sótti fram til Rostov þegar svik áttu sér stað í okkar
röðum. En hann pabbi var í þann tíma sveitarforingi hjá Deníkin.
Þeir sem hann sáu sögðu að hann bar á sér medalíur eins og undir
gömlu stjórninni. Og vegna þeirra svika vorum við allir teknir til
fanga og Fjodor bróðir kom fyrir auglit pabba. Og hann pabbi fór
að skera Fjodor segjandi — skepna, rauði hundur, tíkarsonur og
svoleiðis og skar fram í myrkur þangað til Fjodor Tímofeítsj bróðir
lést. Eg skrifaði þá bréf handa þér hvernig hann Fédja yðar liggur og
enginn kross yfir. En pabbi náði mér með bréfið og sagði: þið eruð
börn ykkar móður, þið eruð hennar hórukyn, ég barnaði mömmu
ykkar og mun barna, líf mitt er búið, tortíma skal ég sæði mínu fyrir
sannleikann og ýmislegt fleira. Eg tók á mig þjáningu frá honum
eins og frelsarinn Jesús Kristur. Svo flúði ég skjótt frá pabba og
komst í mína sveit félaga Pavlitsjenko. Og okkar sveit fékk skipun
um að fara til borgarinnar Voronézh að fá liðsauka, þar fengum við
liðsauka og líka hesta, töskur, marghleypur og allt sem okkur bar.
Voronészh get ég lýst þannig, elsku mamma Jevdokía Fjodorovna,
að þetta er mjög glæsilegur bær, stærri víst en Krasnodar, fólkið þar
er mjög fallegt og hægt að baða sig í ánni. Við fengum tvö pund af
brauði á dag, hálf pund af kjöti og sykur við hæfi, svo við drukkum
sætt te þegar við fórum á fætur, á kvöldin sömuleiðis og gleymdum
hungrinu, en í hádeginu fékk ég pönnukökur eða gæsakjöt hjá Semj-
on Tímofeítsj bróður og lagði mig til hvíldar eftir það. I þann tíma
vildi allt herfylkið fá Semjon Tímofeítsj fyrir foringja fyrir hans fífl-
447