Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1987, Page 71

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1987, Page 71
Hldka, frosthörkur, endurskodun m.a. að setja þá sem ósigur biðu í átökunum sögulegu í þungamiðju verks- ins) að sjálf Októberbyltingin hefði verið tortímandi afl öðru fremur. Og þegar Pasternak hlaut Nóbelsverðlaun í kjölfar þess að þessi skáldsaga varð þekkt á Vesturlöndum, þá dundu á honum brigsl um andleg landráð og hótanir um útlegðardóm sem neyddu hann til að afsala sér verðlaununum. Pasternakmálið virtist gefa ótvírætt til kynna að rithöfundum yrði ekki hleypt langt inn á bannsvæði sovéskrar sögu. Því hlaut það að vekja mikla athygli þegar Novyj mír birti árið 1962 fangabúðasögu Solzhenytsins, „Dagur í lífi Ivans Denísovitsj". Ekki síst vegna þess að nú hreyfði enginn andmælum — ekki var annað að sjá af sovéskri gagnrýni en að höfund- urinn væri að vinna þarft verk, hann létti á samvisku sovéskra bókmennta, sagði Ilja Erenbúrg, með því að fjalla um ranglætið mesta, dagblaðið Pravda líkti ritgáfu hans við Lév Tolstoj, hann var nefndur til Lenínverð- launa. Hetja sögunnar, Ivan Denísovitsj, er venjulegur bóndi. I stríðinu var hann nokkra daga stríðsfangi hjá Þjóðverjum, en strauk til sinna manna. Þar tók við sú tortryggnikvörn sem meðal annars gerði hvern sovéskan stríðsfanga fyrirfram að landráðamanni — og Ivan Denisovitsj var dæmdur til átta ára vistar í þrælkunarbúðum. Sagan segir frá einum degi í slíkum búðum. Þar er frekar vansagt en ofsagt, sneitt hjá stórhörmungum sem yfir fanga ganga, misþyrmingum til dæmis og því hungri sem drepur menn al- veg. En lesandinn fer aldrei í grafgötur um, að baráttan við að lifa af er grimm, einnig þennan tiltölulega hagstæða dag í lífi aðalpersónunnar, sem hefur áður en nótt skellur á nælt sér í aukaskammt af súpu og tóbakslús og komist hjá því að vera settur í svartholið. Kuldinn og langvinnur sultur taka höndum saman við útsmogið kerfi niðurlægjandi eftirlits um að kúga líf og lífsvilja úr Ivan Denísovitsj og félögum hans. Og sú meðferð verður þeim mun herfilegri sem lesandinn kemst æ betur að því, þegar auka- persónum fjölgar í frásögninni af sögudeginum, að í rauninni er hver ein- asti þeirra saklaus. Dagur í lífi Ivans verður sem þúsund ár þjóðarharmleiks sem enga réttlætingu fær. Um leið kann Solzhenytsin vel að sýna seiglu hins rússneska hvunndagsmanns, sem ekki aðeins kann mörg ráð til að snúa á fangaverði, heldur getur jafnvel úr heimskulegu striti fangabúðanna unnið sér um stund vissan tilgang í lífinu, með því til dæmis að taka virkan þátt í að hlaða vegg fljótt og vel. Solzhenytsin, sem sjálfur hafði fengið átta ára dóm í stríðslok fyrir að láta í bréfi til vinar síns uppi vantrú á herkænsku Stalíns, birti á næstu miss- erum nokkrar sögur úr sovéskri samtíð og úr stríðinu. Og sá gamalkunni tónn fór fljótlega að heyrast í sovéskum fjölmiðlum, að höfundur gæfi of neikvæða mynd af sögu og samtíð. Sú er einföldust skýring á þeim um- 461
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.