Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1987, Side 74

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1987, Side 74
Tímarit Máls og menningar frá dauðum", Mikhaíl Búlgakov skrifaði sögu sína á fjórða áratugnum og hafði þá verið dæmdur til að þegja og þrauka sem bókmenntaráðunautur við Listaleikhúsið í Moskvu um margra ára skeið. Hann lést árið 1940. Þessi saga gerist á mörgum hæðum ef svo mætti segja. Djöfullinn og árar hans koma til Moskvu og gera þar marga skráveifu — en eingöngu þeim sem ekkert gott eiga skilið, þeir afhjúpa mútuþega, leigupenna, rógbera og forréttindahyski og refsa þessu liði með grimmum og einatt spaugilegum göldrum. En þetta hrekkjaglaða lið gerir fleira en að freista þeirra sem fjandinn telur sér vísa. Djöfsi, sem hér ber kápu Wolands nokkurs, „sér- fræðings í svartagaldri" er einnig til Moskvu kominn til að leggja lið ástinni og listinni, Meistaranum sem hefur skrifað sögu sem bókmenntamenn í náð valdsins hafa hakkað í sig og hrakið hann sjálfan á geðveikrahæli, og Margarítu sem elskar hann og vill bjarga honum og dýrmætu handriti hans frá glötun. Inn í þennan vef er svo fléttað sögunni sem Meistarinn hefur skrifað, og Woland vottar að sé sannleikanum samkvæm — en hún er um Jesúm og Pílatus og er einskonar dæmisaga af von rithöfundar um réttlæti á myrkum tímum. Pílatus verður tákn þess hugleysis sem Búlgakov leggur sig fram um að lýsa hinn versta löst — hann þorir ekki annað en senda fanga sinn á krossinn þegar Jesús játar trú sína á framtíðarríki sannleikans þar sem keisarar (eða þá einræðisherrar okkar aldar) hafa ekki lengur vald yfir mönnum. En Jesús, eða Jesúa eins og hann heitir hér, verður tákn og ímynd þeirra manna sem eru trúir sínum sannleika og hika ekki við að láta lífið fyrir hann — og tryggja málstað sínum langlífi með fórn sinni. Hér er fátt eitt sagt af þessu sérstæða skáldverki. Hitt er víst að sovéskir lesendur (sem reyndar fengu ekki að lesa söguna nema með úrfellingum) áttu ekki að venjast jafn djarflegri samþættingu hugarflugs, ádrepu og grimmrar gamansemi og hér var boðið upp á. Þeir hlutu að furða sig á hinni áhrifaríku víxlverkan ljóðrænu, hrollvekju og prakkaraskapar, og svo því, hvernig píslarsagan er höfð til að hnykkja á spurningum um gott og illt í sögu og samtíð. Fordæmi Búlgakovs hefur að líkindum dregið nokkuð úr raunsæisátrúnaði í sovéskum bókmenntum — en þá fyrst og fremst meðal Samízdathöfunda, sem síðar meir hröktust í útlegð sumir hverjir. Er þá ekki úr vegi að nefna til dæmis Vladímír Vojnovitsj, sem árið 1974 birti (er- lendis) söguna „Líf og óvænt ævintýri hermannsins Ivans Tsjonkíns", óbreytts hermanns og reyndar mesta sakleysingja, sem snýr á „kerfið“ og útsendara þess með aðferðum sem helst minna á annan góðan dáta, Sjveik þann sem tékkneski rithöfundurinn Jaroslav Hasek bjó til, sællar minning- ar. 464
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.