Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1999, Page 112

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1999, Page 112
RITDÓMAR að færa skjótan árangur á sama hátt og aðrar atvinnugreinar, ekki síst sjó- róðrar í hrotum. En Karlinn átti ekk- ert skylt við þetta og það var hans sterka hlið. Myndin hafði engan ákveðinn tilgang, ekki einu sinni þann að vera augnayndi þó hún væri það kannski fyrir tilviljun eða eðli sínu samkvæmt“ (bls. 84-5). Myndin af Karlinum er löngu horfin en Guðbergur varðveitir hér minninguna um hana og endurskapar Karlinn í orð- um sem tákn um ákveðna listsýn. Karl- inn kveikti einhvern óljósan skilning, en Guðbergur heldur fram að óljós skiln- ingur sé forsenda fyrir allar okkar lang- anir: „Með þetta að leiðarljósi hef ég reynt að festa Karlinn á blað og dulmagnið sem honum fylgdi enda er það hlutverk skáldsins að finna efnivið í því sem er eflaust annað hvort einskis virði, innan- tómt eða úr sögunni að áliti flestra“ (bls. 101). Sá óljósi skilningur sem myndin af Karlinum vakti hjá Guðbergi er þá hér (endur)skapaður sem dæmi um þróun lífssýnar hans, úr bernsku þar sem fátt var um listrænar fyrirmyndir. Skáldið gegnir líka því hlutverki sam- kvæmt Guðbergi að finna fegurð þar sem aðrir sjá ekki nein merki hennar. Guð- bergur dregur þetta fram í lýsingu á mel sem engum þótti mikið til koma. Hann veltir fyrir sér hvers vegna fegurð melsins kemur ekki fram á ljósmyndum af hon- um: „finnst hún ekki bara vera ólík hon- um þegar ég fer á hann til að bera saman mynd og mel heldur er hitt verra: mynd- in á ekkert skylt við hugmyndina sem ég geymi af honum“ (bls. 107). Það er hug- myndin um melinn sem skiptir máli þeg- ar fegurð hans er metin og ljósmyndir í allri sinni tátólógíu eru ekki endilega rétti miðillinn til að koma henni á fram- færi: „Núna er mér ljóst að fegurð mels- ins fólst ekki í honum sjálfum heldur var hún fyrir utan hann. Svona er fegurðin og eðli hennar. Hún var ekki í melnum heldur í hugmynd sem ég gerði mér af honum og kannski verður hún í því sem ég dreg ffam í orðum ef ég vanda mig“ (bls. 104). Fyrirmyndin getur því verið á allan máta og segir ekki til um gæði þess sem úr verður og að endurskapa þessa fegurð í orðum er það sem skáldið verður sífellt að kljást við. Eftirmæli föðurins um ömmuna verður ffekari uppspretta hugleiðinga um fyrirmyndir, tilfinningar og skáld- skap: „Allt í einu datt mér í hug að með heimsóknum á elliheimilið hefði hann verið að sækja efnivið í eftirmæli og setið þar þögull, hugsi við að festa í minnið margvíslegu geðhrifin sem hann varð fýrir til að færa þau óbrengluð í hæfilegan búning við heimkomuna. Hann ætlaði að „ná“ þessu [...] Notaði hann jafn skelfilega aðferð svo hann ætti auðveldara með að yrkja? Fór hann ekki að heimsækja móður sína heldur í leit að því sem er kallað innblástur? Eru skáldin þannig að form og efni ljóðanna skipti meira máli en það sem formið og efnið byggjast á?“ (bls. 311). Skáldskapur föðurins er því í raun óhugnanlegur því hann setur form og efni ljóðanna ofar veruleika og tilfinn- ingum. Til þess að „ná“ þessu þarf fjar- lægð, jafnvel kulda. En þetta er hæfileiki sem er jafnframt hluti af því að vera skáld; hæfileikinn til að sjá nálægðina úr fjarlægð. Guðbergur segir um föður sinn að: „Með kunnáttu skálds ræktaði hann þá hæfileika að geta horft á nærtækan efnivið úr fjarlægð, á sama hátt og þegar vitsmunirnir skoða ástríðurnar. Hlut- leysið er þeirra aðal. Þeir sjá nálægðina jafnan úr fjarlægð" (bls. 296-7). Þessi 110 www.mm.is TMM 1999:3
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.