Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.2004, Síða 166
1047-1066. Kirkja Ólafs gæti hafa verið léleg eða of lítil og orðin þörf á
gagngerum endurbótum eða endurbyggingu þó að ekki væri langt um
liðið frá byggingu hennar. Slíkar vangaveltur eru þó til lítils. Heimildirnar
eru of fjarlægar atburðunum í tíma og of ósamstíga – án þess að vera hver
um sig sérstaklega ólíkleg – til þess að hægt sé að draga af þeim skýrar
niðurstöður.
Þó að Þingvallakirkju og kirkjugarðs sé getið á nokkrum stöðum í Ís-
lendingasögum, verður lítið af þeim frásögnum ráðið um gerð kirkjunnar
eða staðsetningu. Ljóst er að þingmenn hafa að jafnaði gengið til aftan-
söngs í Þingvallakirkju,10 að hellur hafa verið sunnan við kirkjuna og að
þar hafa menn oft staðið á mannfundum.11 Í Grágás og Njáls sögu er kirkju-
garðurinn á Þingvöllum kallaður ‘búandakirkjugarður’12 og hefur það
hugtak lengi valdið mönnum heilabrotum.
Páll Vídalín (1667-1727) segir frá því í Skýringum yfir fornyrði Jóns-
bókar að Alexíus Pálsson, sem var prestur á Þingvöllum frá um 1514 til
1533, hafi fært kirkjuna úr kirkjugarðinum og upp á hólinn þar sem hún
hefur staðið síðan, norðan við bæinn, vegna vatnsuppgangs í kirkjugarð-
inum. Páll bætir því við að kirkjan hafi í fornöld staðið á hólnum þangað
sem kirkjan var færð á 16. öld.13 Hann skýrir ekki nánar á hverju þessi
sögn sé byggð, en einfaldast er að álykta að Páli eða einhverjum öðrum
glöggum fræðimanni á undan honum hafi þótt hugtakið ‘búandakirkju-
garður’ grunsamlegt og því sé um að ræða fræðilega ályktun frekar en
áreiðanlega hefð.
Sigurður Guðmundsson, sem fyrstur gerði skipulega rannsókn á Þing-
völlum, taldi það gamla og almenna sögn að tvær kirkjur hefðu verið á
Þingvöllum í fornöld, annars vegar búandakirkja og hins vegar þing-
mannakirkja (nýyrði Sigurðar?) enda væri orðið búandakirkjugarður
„tilgángslaust orðatiltæki, ef kirkjugarðurinn hefði verið einn.“ Hann
taldi það líka almenna sögn að þingmannakirkjan hefði staðið þar sem
Þingvallakirkja stendur nú og taldi sig sjá ummerki bæði um kirkjugarð
og klukknaport þar á hólnum. Birtir Sigurður tilgátumyndir bæði af
þingmannakirkjunni og klukknaportinu.14
Matthías Þórðarson gerði röksemdafærslu Sigurðar að sinni, enda taldi
hann ófært að þingmenn hefðu þurft að troðast inn í kirkju Þingvalla-
bónda, sem hann sá fyrir sér sem litla einkakapellu sem hefði verið reist
skömmu eftir kristnitöku. Þess vegna hefði verið mikil þörf á nýrri kirkju
sem Ólafur helgi hefði gefið þjóðinni og hefði hún þjónað þingheimi til
1118 er hana braut í ofsaveðri. Síðan þá hefði aðeins verið búandakirkja
á Þingvöllum.
ÞINGVALLAKIRKJA 165