Valsblaðið - 01.05.2015, Síða 14
14 Valsblaðið 2015
Starfið er margt
Því miður hefur ástandið verið þannig að
einstaka foreldri eða forráðamaður iðk-
enda í Val hafa ekki haft tök á því að
greiða æfingagjöld. Hefur sá kostnaður
yfirleitt verið afskrifaður af félaginu eða
samið um aðrar greiðslur. Með stofnun
sjóðsins er áætlað að koma í veg fyrir
slíkt þar sem fólk getur sótt rafrænt um
styrk í sjóðnum fyrir æfingagjöldum og
kostnaði tengdum íþróttum í Val.
Allar umsóknir eru trúnaðarmál sem
aðeins stjórn Friðrikssjóðs hefur aðgang
að. Þrír skipa stjórn sjóðsins, einn er til-
nefndur af aðalstjórn Vals, annar af
stjórn barna- og unglingasviðs Vals og
þriðji er starfandi framkvæmdastjóri
félagsins. Skipulagsskrá og úthlutunar-
reglur sjóðsins ásamt umsóknareyðu-
blaði er hægt að nálgast á heimasíðu
Vals undir tenglinum Friðrikssjóður.
Stofnfé sjóðsins er sjálfsaflafé og búið
er að tryggja fjármögnun sjóðsins í þrjú
ár hið minnsta. Allar nánari upplýsingar,
svo sem úthlutunarreglur, er að finna á
heimasíðu Vals, www.valur.is
Þorgrímur Þráinsson
Þann 27. ágúst árið 1897 var séra Friðrik
Friðriksson, stofnandi Vals, á leið upp
Skólavörðuholtið. Hann hafði með sér
ungan fósturson, Hans, sem kom frá
bláfátækri, barnmargri fjölskyldu í Kaup-
mannahöfn. Friðrik var beðinn um að
taka hann að sér og því hafði hann fóst-
urson sinn með sér til Íslands. Það kom
mest í hlut móður Friðriks að annast um
Hans. Á fullorðinsárum var hann málara-
meistari í Winnipeg en fátt annað um
hann er vitað.
27. ágúst er einn stærsti dagurinn í al-
manaki sr. Friðriks Friðrikssonar stofn-
anda Vals. Hallgrímskirkja er þar sem
Valsvöllur yngstu drengjanna stóð árið
1918. Kirkjan er sóknarkirkja Vals. Sam-
tök um byggingu Friðrikskapellu voru
stofnuð í Hallgrímskirkju 1989.
Knattspyrnufélagið Valur hefur sett á
laggirnar styrktarsjóð sem hlotið hefur
nafnið Friðrikssjóður í höfuðið á séra
Friðriki Friðrikssyni, stofnanda Vals.
Þótt sjóðurinn hafi verið fyrst kynntur 1.
desember sl. var stofndagur hans 27.
ágúst 2015, til að heiðra enn frekar
minningu séra Friðriks.
Hlutverk sjóðsins er að tryggja að allir
núverandi og framtíðar iðkendur Vals
geti staðið straum af þeim kostnaði sem
fylgir því að stunda íþróttir í Val og
tryggja að engu barni sem vill stunda
íþróttir verði meinað að gera slíkt sökum
fjárskorts á heimili sínu.
Fjórða grein skipulagsskrár fyrir Frið-
rikssjóð er svohljóðandi.
Tilgangur sjóðsins er að styrkja efna-
minni iðkendur til þátttöku í starfi
barna- og unglingasviðs Vals. Frið-
rikssjóður mun, eftir bestu getu,
styrkja iðkendur um æfingagjöld,
ferðakostnað vegna keppnisferða og
veita styrki til kaupa á æfingabúnaði,
til að mynda skóm og æfingafatnaði.
Sjóðsstjórn áskilur sér rétt til þess að
meta umsóknir eftir þörfum.
Hjálpumst að!
Stofnun Friðrikssjóðs í Knattspyrnufélaginu Val
Björn Zoëga, formaður Vals leggur blóm á minnisvarða um sr. Friðrik á afmælisdegi
Vals, 11. maí 2015. Mynd Þorsteinn Ólafs.
Tilgangur Friðrikssjóðsins er að styrkja
iðkendur frá efnaminni fjölskyldum til
að stunda íþróttir í Val.
Harmony Gray
INNRÉTTINGAR
Leikum saman
■ Eldhúsinnréttingar
■ Baðinnréttingar
■ Þvottahúsinnréttingar
■ Fataskápar
20% afsláttur af hágæða
AEG eldhústækjum
með kaupum á
HTH innréttingum.
Lágmúla 8 • Reykjavík • 2. hæð
símar 530 2818 / 530 2819 / 530 2820 / 530 2821
Opið mánudaga - föstudaga kl. 10-18
og á laugardögum kl. 11-15.
Alltaf opið á Ormsson.is
HTH er leiðandi framleiðandi eldhússinnréttinga.
Samspil fágaðrar hönnunar og einstakra gæða
einkenna HTH innréttingarnar enda er dönsk
hönnun mikils metin og danskt handverk eftirsótt
um heim allan.
Hönnuðir okkar vinna með þínar hugmyndir
og óskir, teikna tillögur að draumaeldhúsinu
og gera þér frábært tilboð.
Þannig leikum við saman.