Valsblaðið - 01.05.2015, Blaðsíða 57
Valsblaðið 2015 57
Barna- og unglingasvið
(BUS)
„Við viljum skapa umhverfi fyrir iðkend-
ur okkar sem veitir þeim tækifæri til að
þroskast bæði sem íþróttamenn og ein-
staklingar. Lykillinn að því felst í mínum
huga í markvissri og faglegri íþrótta-
þjálfun þar sem áhersla er lögð á að efla
færni þjálfara með aukinni menntun og
fræðslu. Þannig stuðlum við að framför-
um og leggjum grunn að farvegi til að
hámarka árangur þeirra sem stunda
íþróttir hjá Val.“
Skilaboð til iðkenda og foreldra
„Velkomin í Val. Það er gaman í Val og
hér ríkir góður andi. Ég vil því hvetja
krakka á öllum aldri til að heimsækja
okkur að Hlíðarenda því flestir ættu að
finna eitthvað við sitt hæfi – Það er
aldrei of seint að byrja að stunda íþróttir,
hvort sem um ræðir handbolta, körfu-
bolta eða fótbolta.“
Barna- og unglingasvið Vals
(BUS) lagði nokkrar spurningar
fyrir nýjan íþróttafulltrúa
Vals, Gunnar Örn Arnarson,
sem hóf störf hjá félaginu í
haust. Markmiðið er að kynna
lauslega nýjan íþróttafulltrúa
félagsins og áherslur hans en
starfið er ákaflega mikilvægt
fyrir starfsemi yngri flokka.
Valsblaðið býður Gunnar
velkominn til starfa hjá félaginu
og óskar honum góðs gengis í
mikilvægu og erilsömu starfi.
Hver er maðurinn, bakgrunnur, mennt
un og fyrri störf?
„Ég er fæddur og uppalinn á Hellissandi
sem er einn af veðursælustu stöðum á
landinu, þó víðar væri leitað (er þessu
blaði ekki örugglega dreift í Ólafsvík?).
Flutti suður rétt eftir aldamót til að ganga
í menntaskóla og lauk stúdentsprófi frá
Fjölbrautaskólanum við Ármúla 2004.
Hóf síðan nám við Háskóla Íslands 2007
og lauk grunnnámi í stjórnmálafræði og
framhaldsnámi í opinberri stjórnsýslu í
kjölfarið.
Samhliða námi hef ég tekið ýmsa hluti
að mér og spannar ferilskráin vítt svið,
allt frá því selja málningu í að vera að-
stoðarmatsveinn á grænlenskum frysti-
togara (ævintýraþráin – maður lifandi).
Lengst af hef ég þó starfað innan íþrótta-
hreyfingarinnar þar sem ég gegndi stöðu
framkvæmdastjóra Ungmennafélags Vík-
ings í Ólafsvík til fjölda ára, fyrst í sum-
arvinnu en síðan í fullu starfi 2012–
2014. Samhliða því hafði ég yfirumsjón
með Snæfellsnessamstarfinu í knatt-
spyrnu sem er samstarf allra ungmenna-
félaga á Snæfellsnesi.“
Hverjar eru helstu áskoranir í Val?
„Tvímælalaust að viðhalda því öfluga
starfi sem fyrir er hér á Hlíðarenda en
jafnframt stuðla að framþróun í þeim
greinum sem hér eru stundaðar. Við vilj-
um að iðkendur okkar fái framúrskarandi
þjálfun við bestu mögulegu aðstæður.
Það hafa nú þegar verið tekin mikilvæg
skref í því sambandi t.d. með lagningu
nýs gervigrass á aðalvöll félagsins sem
mun bæta vetraraðstöðuna til muna.
Það er eins með Val og önnur íþrótta-
félög að þau byggjast upp á fólkinu í
kringum þau. Á þessum fyrstu vikum í
starfi hefur mér fundist áberandi hversu
sterkur félagsandi er hér á Hlíðarenda og
augljóslega margir sem bera hag félags-
ins fyrir brjósti. Það er því ekki síðri
áskorun að fjölga iðkendum (Völsurum)
og það sem meira er, viðhalda þeim.“
Hver er þín framtíðarsýn fyrir yngri
flokka Vals?
Það er gaman í Val og
hér ríkir góður andi
Gunnar Örn Arnarson nýráðinn íþróttafulltrúi Vals tekinn tali
Gunnar Örn Arnarson nýr íþróttafulltrúi Vals á herrakvöldinu í haust ásamt Viðari
Bjarnasyni fyrrverandi íþróttafulltrúa.