Valsblaðið - 01.05.2015, Side 92
92 Valsblaðið 2015
Eftir Jón Guðmundsson
Þá upphófust miklar vangaveltur með-
al okkar strákanna, hvort það myndi vera
óhætt að trufla meistarann við morgun-
verðinn og biðja hann um eiginhandar-
áritun. Betra tækifæri gæfist varla.
Þetta var nú flóknara en það virtist í
fyrstu. Nú, ef einhver þyrði að trufla
Fischer á hvað ætti þá að láta hann
skrifa? Stærsta spurningin var hins veg-
ar: „Er einhver með penna?“
Ekki veit ég hversu mikils virði 100
kall árins 1972 væri í dag en úr varð að
þrír strákar fóru hikandi til Fischers með
sinn hvorn 100 kallinn – og penna – og
báðu um áritun. Við hinir biðum spennt-
Reykjavík og reyndar um gervalla heims-
byggðina því borgin var vettvangur stórat-
burðar, heimsmeistaraeinvígis Fischers og
Spasskys. Heimurinn stóð á öndinni.
Hverju skyldi Fischer taka upp á næst?
Yrði næsta skák tefld eða yrði yfirleitt
eitthvað úr þessu einvígi? Bobby Fischer
var viðfangsefni fjölmiðla um víða ver-
öld.
En viti menn. Þennan júlímorgun þeg-
ar Valsmenn flykktust í Loftleiðahótelið
sat þetta mesta vandræðabarn veraldar,
Bobby Fischer, hinn rólegasti að snæða
spælt egg á kaffiteríu hótelsins. Við rák-
um upp stór augu.
Eldsnemma júlímorgun einn árið 1972
mættu strákar úr öðrum flokki Vals á Hót-
el Loftleiðir til að taka rútu til Keflavíkur.
Förinni var heitið til Noregs, nánar tiltek-
ið bæjarins Brummunddal. Þetta var upp-
haf ævintýraferðar sem enn er í minnum
höfð. Jafnaldrar okkar frá Brummunddal
höfðu komið í heimsókn til Vals árið áður.
Þeir gistu í Fjósinu en við strákarnir buð-
um þeim heim til okkar í mat dagana sem
þeir dvöldu í Reykjavík. Hef ég æ síðan
haldið sambandi við þann strák sem
snæddi heima hjá mér sumarið 1971.
Þetta var merkilegur júlímánuður í sögu
þjóðarinnar. Það var spenna í loftinu í
Bobby Fischer snæðir
morgunverð á Hótel Loftleiðum
Noregsfarar 2. flokks í knattspyrnu 1972. Standandi frá vinstri: Jón Guðmundsson, Sigurður P. Harðarson, Magnús Magnússon,
Halldór Sigurðsson, Kristján Guðjónsson, Anton Einarsson, Helgi Benediktsson, Kristinn Björnsson, Hannes Lárusson, Ólafur
Magnússon, Guðjón Harðarson, Jón Þór Einarsson, Sverrir Ögmundsson, Þórhallur Björnsson, Friðgeir Kristinsson og Jón
Gíslason. Miðröð frá vinstri: Guðlaugur Björgvinsson stjórnarmaður, Lárus Loftsson þjálfari, Ægir Ferdinandsson, formaður Vals,
og Elías Hergeirsson, formaður knattspyrnudeildar. Fremsta röð frá vinstri: Hafliði Loftsson, Einar Kjartansson, Grímur
Sæmundsen, Birgir Jónsson og Ragnar Haraldsson.