Valsblaðið - 01.05.2015, Síða 117
Valsblaðið 2015 117
Framtíðarfólk
Sveinn hefur æft fótbolta síðan hann var
4 ára og hefur því æft fótbolta í 12 ár og
alltaf verið í Val. Hann var á leikskóla í
Valshverfinu og telur að það hafi ekki
komið annað til greina hjá sér en að fara
í Val með vinunum og svo einnig var
frændi hans að æfa körfu í Val.
Hvers vegna fótbolti? „Fótbolti er bara
skemmtilegasta íþrótt sem til er en ætli
pabbi hafi ekki haft mikil áhrif á það að
ég byrjaði í fótbolta, mikill áhugi á fót-
bolta hjá föður mínum. Ég æfði hand-
bolta, fyrst reyndar í öðru félagi en svo
auðvitað með Val.“
Hvaða þýðingu hefur það fyrir þig að
hafa fengið Friðriksbikarinn? „Þetta er
mér mikil heiður, þetta er bikar sem er
aðeins afhentur þeim sem hafa sýnt
mestan andlegan þroska og verið til
fyrir myndar innan vallar sem utan og að
vera metinn með þessa eiginleika er mik-
ill heiður sem ég er mjög þakklátur fyrir.
Tilfinningin er góð, þetta er stór farand-
bikar sem maður fær að vera með í eitt ár
og það er bara gaman.“
Hvernig gekk ykkur á þessu ári?
„Okkur í 3. flokki gekk bara ágætlega á
þessu ári, tókum þátt í Reykjavíkur-
mótinu sem reyndar fór illa en var lær-
dómsríkt svo þegar Íslandsmótið byrjaði
þá fór okkur að ganga betur og vorum
við að berjast um það að komast upp um
deild og réðst það ekki fyrr en á loka-
sprettinum og því miður tókst okkur ekki
að komast upp. Flokkurinn tók einnig
þátt á Rey Cup en ég var ekki með á því
móti þar sem ég var að keppa með 2.
flokki á sama tíma. Hópurinn núna í 2.
flokki er bara góður og stemningin líka
bara góð.“
Hvernig eru þjálfarar þínir? „Þjálfar-
arnir mínir eru góðir, hafa mikinn metn-
að fyrir flokknum og vilja að við bætum
okkur sem fótboltarmenn. Það sem ein-
kennir góðan þjáflara að mínu mati er að
hann hafi metnað fyrir verkefninu og
áhuga, sé tilbúinn að hlusta á leikmenn
og tala við þá um allt sem tengist íþrótt-
inni, séu með aga og komi með góðar
æfingar sem hjálpa leikmönnunum að
bæta sig.“
Hverjar eru fyrirmyndir þínar í fót
boltanum? „Frank Lampard er maður-
inn, super Frank hefur alltaf verið í
miklu uppáhaldi hjá mér og er mikil fyr-
irmynd. Frábær miðjumaður og mikill
leiðtogi innan sem utan vallar akkúrat
leikmaðurinn sem mig hefur alltaf lang-
að að vera. Og svo skaðar ekki að hann
skoraði og skoraði með Chelsea sem ég
að sjálfsögðu held með, Chelsea gæti al-
veg notað markahæsta mann liðsins frá
upphafi núna, Super Frankie Lampard.“
Hvað þarf til að ná langt í fótbolta eða
íþróttum almennt? „Til að ná langt í
hverju sem er í lífinu þarf maður að hafa
áhuga, metnað og jákvætt hugafar fyrir
því sme maður tekur sér fyrir hendur það
sama á við um íþróttir. Og í íþróttum
þarf líka að hugsa um matarræði og að
halda sér í formi og einfaldlega gefa
100% á hverri æfingu og í hverjum leik,
einnig gildir mottóið að aukaæfingin
skapi meistarann. Hjá mér þarf ég mögu-
lega að bæta mataræðið hef alltaf verið
frekar mikill matargikkur og matvondur.
Þarf að taka mig á í þeim efnum.“
Hverjir eru þínir framtíðardraumar í
fótbolta og lífinu almennt? „Framtíðar-
draumar mínir eru að komast sem lengst
í atvinnumennsku í fótbolta og draumur
að spila með landsliðinu og í ensku úr-
valsdeildinni. Ég sé mig í atvinnu-
mennsku vonandi í ensku úrvalsdeildinni
eftir tíu ár að lifa góðu lífi.“
Hver er frægasti Valsarinn í fjölskyld
unni þinni? „Ætli frægasti Valsarinn sé
ekki Sólrún Ástvaldsdóttir frænka mín
sem ég þekki samt eiginlega ekki neitt,
spilaði og varð Íslandsmeistari með
meistaraflokki kvenna í fótbolta. Besti
íþróttamaðurinn er líklegast Jón Sigurðs-
son sem var valinn körfuboltamaður árs-
ins í kringum 1970 og landsliðsmaður til
margra ára en ég þekki hann heldur
eigin lega ekki neitt því miður.“
Aukaæfingin skapar
meistarann
Sveinn Jónsson er 16 ára og leikur knatt-
spyrnu með 2. flokki og fékk Friðrksbikarinn
á uppskeruhátíðinni í haust