Valsblaðið - 01.05.2015, Qupperneq 53
Valsblaðið 2015 53
Starfið er margt
legt handboltagólf á hluta hússins sem
verði fjarlægt þegar keppnisleikir í knatt-
spyrnu eru í húsinu. Handboltagólfið á
að vera á um 20% af gólffletinum þannig
að það truflar ekki knattspyrnuæfingar.
Við sáum þetta sem mikinn möguleika
fyrir Val. Það breytir miklu að geta nýtt
hluta af væntanlegu knatthúsi fyrir hand-
bolta- og körfuboltaæfingar þegar leikir,
sýningar eða tónleikar eru í íþróttahúsi
Vals. Áætlað er að það taki um 2 klst. að
setja upp og fjarlæga handboltagólfið.
Næst var haldið til fundar við Ole
Myhr vold yfirmann mannvirkjamála
norska Knattspyrnusambandsins. Fundur-
inn var haldinn heima hjá Ole og tók hann
á móti mönnum af miklum höfðingsskap
og áttum við tveggja tíma fund með hon-
um. Ole upplýsti okkur að búið væri að
byggja mörg keppnisknatthús í fullri
stærð í Noregi og nú væri það stefna
norska Knattspyrnusambandsins að
byggja fleiri og minni knatthús til æfinga.
Þá var haldið í Valhöll sem er stór
Næsta heimsókn var í Manglerud höll-
ina sem er líka í Osló. Sú höll er 62x94
m og byggð árið 2004. Starfsemin snýst
fyrst og fremst um unglingastarf nær-
samfélagsins. Tveir heimamenn tóku ein-
staklega vel á móti hópnum og leið-
beindu um mannvirkið. Það var á marg-
an hátt áhugaverð skoðun. Höllin var
byggð yfir gamlan völl en stærðin
ákvarðaðist af að þeir fengu ekki að
byggja stærra vegna nágranna.
Það var áhugavert að sjá að þeir eru
með kork í grasfyllingunni í stað gúmmís
og voru þeir afar ánægðir með þá
ákvörðun. Korkurinn kostar ekki meira
en gúmmí að sögn heimamanna. Líkt og
í LSK Höllinni er hægt að skipta gólfinu
í smærri velli með fellitjöldum. Rekstrar-
kostnaður var þarna jafnframt minni en í
sumum stórum húsum á Íslandi. Salurinn
er afar skemmtilegur og bjartur, enda eru
stórir gluggar á báðum göflum hallarinn-
ar. Hér sáum við kosti þess að hleypa
náttúrulegri birtu inn í salinn. Þessi
heimsókn sannfærði okkur enn frekar um
þörfina á að byggja knatthús þegar við
sáum hvað knatthús hefur gert fyrir ung-
lingastarfið í Manglerud. Morguninn eft-
ir heimsóttum við Valdres knatthúsið
sem er í byggingu skammt fyrir norðan
Osló. Þetta er hús 80x120 m með 20 m
lofthæð. Einföld stálgrindarbygging
klædd með samlokueiningum, fullein-
angruð með upphitun. Gluggar voru á
hliðum sem hleypa birtu inn. Gluggarnir
hefðu mátt vera stærri. Þetta er eitt af
fjölmörgum knatthúsum sem Hugaas AS
eru að byggja víðsvegar um Noreg fyrir
lægra verð en áður hefur verið í boði.
Það var gaman að sjá þetta hús þó okkur
hafi þótt það heldur stórkarlalegt í útliti.
Kristján arktekt sagði að byggingin líkt-
ist óneitanlega vöruflutningaskemmu á
hafnarbakka. Húsið sjálft gefur hins veg-
ar mikla möguleika til íþróttaiðkunar.
Það sem var sérstaklega fróðlegt við
þetta hús er að ætlunin er að hafa færan-
erfið fyrir aðra viðburði, t.d. tónleika og
sýningar. Stálgrindarhús klædd með dúk
voru valkostur, því þau hafa víða reynst
mjög vel sbr. hús FH. Niðurstaðan með
samanburði á notkunarmöguleikum,
vegna íþrótta, tónleika, sýningarhalds og
hagstæðs verðs var að leggja til að skoð-
uð væru stálgrindarhús, fulleinangruð
með samlokueiningum. Hægt ætti að
vera að byggja þannig hús eftir teikning-
um sem Kristján Ásgeirsson arkitekt hef-
ur gert drög að fyrir hagstætt verð.
Jafnframt var niðurstaða athugunarinnar
að eftirspurn eftir útleigutímum væri meiri
en talið var, og mikil eftispurn væri eftir
að leigja tíma undir leiki í vetrarmótum.
Til samaburðar um byggingarkostnað
mismunandi tegunda knatthúsa, má
skoða þetta dæmi. Ef hefðbundið knatt-
hús líkt og Fífan kostar 100% þá kostar
uppblásið hús um 35–40%. Stálgrindar-
hús klætt með dúk um 50–55%. Einfald-
ara knatthús með samlokueiningum um
75–80% og loks hús eins og Egilshöll og
Kórinn um 160–200%.
Eftir að þessar upplýsingar lágu fyrir
var ákveðið að knatthúshópurinn færi í
skoðunarferð til Noregs. Tilgangur ferð-
arinnar var að sjá þá valkosti sem í boði
eru, gera samanburð við knatthús á Ís-
landi og ræða við forsvarsmenn þeirra
félaga sem reka húsin.
Ferð til Noregs
Ferðahópurinn samanstóð af Brynjari
Harðarsyni, framkvæmdastjóra Vals-
manna hf., Jóhanni Má Helgasyni fram-
kvæmdastjóra Vals, Guðna Bergssyni,
Jónasi Guðmundssyni og Kristjáni Ás-
geirssyni arkitekt sem var jafnframt
fulltrúi mannvirkjanefndar KSÍ. Lýsing á
ferðalaginu er tekin úr skýrslu Kristjáns
um ferðalagið.
Flogið var til Osló 16. október og
haldið til Lilleström í Osló þar sem KR-
ingurinn og þjálfari Lilleström, Rúnar
Kristinsson tók á móti okkur ásamt for-
svarsmanni félagins. Sýndu þeir okkur
hið veglega knatthús sem Lilleström æfir
í, LSK-Höllina. Húsið er stálgrindarhús
byggt árið 2006, með löglegum keppnis-
velli og áhorfendastæðum fyrir 1500
manns. Það var mjög fróðlegt að sjá
hvernig þeir nýta höllina með fellitjöld-
um. Þeir upplýstu okkur um að rekstrar-
kostnaður væri hóflegur og þeir miða við
að halda 13–14°C hita á höllinni. Eitt at-
riði í viðbót sem við lærðum að hljóðvist
var ekki nógu góð og vanda þarf til þess
þegar við förum að byggja okkar hús.
Guðni Bergsson, Rúnar Kristinsson þjálfari Lilleström,
Jóhann Helgason, Krisján Ásgeirsson, Brynjar Harðarson,
Espen Søgård og Jónas Guðmundsson.
Björn Zoëga formaður Vals afhenti
Kristjáni Ásgeirssyni t.v., Valsorðuna á
gamlaársdag 2014. Brynjar Harðarson
framkvæmdastjóri Valsmanna hf. t.h. en
þeir vinna náið saman við uppbygg-
ingarstarf að Hlíðarenda. Mynd Þor-
steinn Ólafs.