Valsblaðið - 01.05.2015, Blaðsíða 51
Valsblaðið 2015 51
Barnastarf
spenntur og tekur sér stöðu við dyrnar.
Hvað ertu að gera spyr kennarinn? Nú
fara í Val segir hann þá kotroskinn.
Við erum öll Valsarar
Maður fer nefnilega aldrei nógu oft í Val.
Margir nemendur í elstu hópunum okkar
eru þegar byrjaðir að æfa með Val og þau
yngri eru í Íþróttaskóla Vals. Þau eiga
sínar fyrirmyndir á Hlíðarenda hvort sem
það er Elín Metta Jensen, Hildur Antons-
dóttir, Hlynur Morteins, Jaleesa Butler,
Aron Elí Sævarsson eða jafnvel Snorri
Steinn og Birkir Már landsliðsmenn sem
verða alltaf Valsarar og Eskihlíðarguttar.
Það skiptir miklu máli að iðkendur Vals í
öðrum og þriðja flokki ekki síður en
meistaraflokkum Vals séu meðvitaðir um
stöðu sína sem fyrirmyndir þeirra sem
yngri eru.
Allra hagur af samstarfi
Rannsóknir sem t.d. Rannsókn og grein-
ing hafa gert undanfarin ár sýna að börn
sem stunda íþróttir standa sig oft betur í
skóla og eru líklegri til þess að sneiða hjá
áhættuhegðun. Við þurfum að byrja for-
varnarstarf strax í leikskólum, t.d. með
jákvæðri upplifun af hreyfingu og heil-
brigðum lífsháttum en ekki síst að hvetja
foreldra nemenda okkar til þess að vera
virk í foreldrastarfi skóla og íþróttafé-
laga. Við þurfum að efla samstarf leik-
skólanna og Vals í hverfinu enn frekar,
það er hagur okkar allra.
Áfram Valur!
Eftir Lindu Ósk Sigurðardóttur
deildastjóra á Leikskólanum Hlíð
Leikskólinn Hlíð hefur síðan árið 2003
átt í farsælu samstarfi við Knattspyrnu-
félagið Val. Elstu nemendur skólans
koma einu sinni í viku í hreyfistund í
Valsheimilið, þar sem þau fá tíma og
rými til að njóta fjölbreyttrar hreyfingar.
Það er mikil tilhlökkun í hópnum þegar
farið er í Valsheimilið enda alltaf tekið
vel á móti þeim. Í okkar huga er Vals-
heimilið ekki „bara íþróttahús“ heldur er
það líka stór partur af samfélaginu okkar
í Hlíðunum.
Tenging leikskólabarna í hverfinu
við Val
Í Leikskólanum Hlíð teljum við það að
tengja nemendur okkar á jákvæðan hátt
við nærumhverfi okkar efli félagsfærni
þeirra og umhverfislæsi sem við teljum
mjög mikilvægt. Þannig skiptir viðmót
starfsmanna í Valsheimilinu miklu máli
um upplifun nemenda okkar af heim-
sóknunum og gerir það að verkum að
öllum finnst gaman að koma að Hlíðar-
enda. Við erum nefnilega öll Valsarar.
Eitt skiptið sem við vorum í hreyfistund
þá segir kennarinn „Jæja krakkar nú
skulum við valhoppa yfir völlinn“ . „Ha
hvað er það?“ spyrja nemendur. Kennar-
inn sýnir þeim hvernig á að valhoppa og
þá heyrist í einni stúlkunni „Já svona
Valshopp, mamma kenndi mér það“.
Það er alltaf mikil tilhlökkun í hópnum
að fara að Hlíðarenda. Fyrir nokkrum
vikum var hópnum sagt að eftir samveru
yrði val. Einn drengurinn verður mjög
Við erum Valur
Vikulegar hreyfistundir
leikskólabarna í Valsheimilinu