Valsblaðið - 01.05.2015, Side 62
62 Valsblaðið 2015
Hvað þarf til að ná langt í körfubolta
eða íþróttum almennt? „Það sem þarf
til að ná langt í körfubolta er að æfa mik-
ið og aukalega og andlegur styrkur. Sé
maður duglegur að æfa en sinnir ekki
andlegu hliðinni þá á maður ekki eftir að
ná langt. Andlegi styrkurinn er það sem
lætur hæfileika þína skína.“
Hverjir eru þínir framtíðardraumar í
körfubolta og lífinu almennt? „Líf mitt
snýst um körfubolta og svo lengi sem
mér finnst gaman að spila körfubolta
mun ég spila körfubolta. Í lifinu almennt
vil ég vera hamingjusamur, eiga góða
fjölskyldu og njóta þess sem lífið hefur
upp á að bjóða og halda áfram að ögra
sjálfum mér.“
Hver er frægasti Valsarinn í fjölskyld
unni þinni? „Frægasti Valsarinn í fjöl-
skyldunni minni er örugglega Þorgrímur
Þráinsson. Ég myndi segja að ég væri
besti íþróttamaðurinn í fjölskyldunni.“
Hvaða hvatningu og stuðning hefur þú
fengið frá foreldrum þínum og fjöl
skyldu í sambandi við körfuboltann,
hversu mikilvægur er stuðningur for
eldra að þínu mati? „Foreldrar mínir
hafa veitt mér óendanlegan stuðning, þau
eru ástæðan fyrir því sem ég bý yfir í
dag. Þau sögðu mér frá því hvað hug-
leiðsla gæti gert fyrir mig og kenndu mér
að hugleiða. Eftir að ég byrjaði að hug-
leiða fyrir leiki hef ég spilað miklu bet-
ur.“
Hvað finnst þér mikilvægtast að gera
hjá Val til að efla starfið í yngri flokk
um félagsins? „Þetta snýst allt um metn-
aðinn. Hann þarf að vera til staðar í öll-
um flokkum og að leikmenn fái þá til-
finningu að þeir skipti máli.“
Hvernig er aðstaðan á Hlíðarenda til
að æfa körfubolta? „Hún er mjög góð.
Það er reyndar leiðinlegt að fá aldrei að
æfa á aðalvellinum en annars er allt ann-
að mjög gott.“
Hvað finnst þér að Valur geti gert til
að stuðla að jafnrétti í íþróttum, t.d.
milli kynja og íþróttagreina? „Passa
upp á að bæði kynin fái sömu tækifærin
og njóti sömu réttinda á öllum stigum.
Það sama á við í öllum íþróttagreinum.“
Hver stofnaði Val og hvenær? „Hef
ekki hugmynd.“
Hver eru þín einkunnarorð? „Ég er
ekki með neitt sérstakt mottó en það sem
ég segi alltaf við sjálfan mig fyrir leiki er
að ég er yfirvegaður, einbeittur og sjálfs-
öruggur.“
Illugi hefur æft körfubolta frá því að
hann var 8 ára. Hann kom til Vals í sum-
ar frá KR vegna þess að þar fékk hann
ekki tækifæri með liðinu og var því far-
inn að missa áhuga á körfubolta. Honum
líkar vel hjá Val og finnur bæði fyrir
leikgleði og ánægju.
Hvers vegna körfubolti, hefur þú æft
aðrar greinar? „Áður en ég byrjaði í
körfubolta hafði ég prófað að æfa fót-
bolta og fimleika. Það var ekki eitthvað
sem átti við mig. Vinur minn náði svo að
draga mig á körfuboltaæfingu í KR og
það varð ekki aftur snúið.“
Hvernig gengur ykkur? „Okkur er búið
að ganga mjög vel á þessu tímabili.
Erum taplausir í deildinni og ætlum okk-
ur að halda því þannig. Það eru allir
mjög góðir vinir í liðinu og gæti ég eig-
inlega ekki verið ánægðari með hópinn,
mjög góður mórall í liðinu.“
Hvernig eru þjálfarar þínir? „Gústi og
Jenni eru mjög góðir þjálfarar. Ég er
mjög ánægður með kerfin sem Gústi er
að láta okkur hlaupa og eru þeir búnir að
mynda góða liðsheild innan liðsins. Það
sem einkennir góðan þjálfara er mikill
áhugi og metnaður fyrir liðinu sínu.
Góður þjálfari talar við hvern og einn
leikmann um það sem hann gerir gott og
um það sem þarf að bæta og gera betur.“
Skemmtileg atvik úr boltanum. „Ég er
búinn að vera svo stutt í þessu liði þannig
að það er ekki mikið sem að ég get sagt
frá. En það sem stendur upp úr, bæði inn-
an og utan vallar, er ferðin til Akureyrar,
þegar við unnum mikilvægan sigur þar.“
Hverjar eru fyrirmyndir þínar í
körfuboltanum? „Helsta fyrirmyndin
mín í körfunni er og hefur alltaf verið
Lebron James. Hvernig hann keyrir á
körfuna og klárar sterkt, hefur alltaf hrif-
ið mig.“
Ungir Valsarar
Þetta snýst allt
um metnaðinn
Illugi Steingrímsson er 18 ára gamall og leikur
körfubolta með unglinga- og meistaraflokki