Valsblaðið - 01.05.2015, Blaðsíða 83
Valsblaðið 2015 83
Þegar þessum mælingum var lokið lauk
afskiptum af fyrri þjálfunarhópi en seinni
þjálfunarhópur tók þátt í sambærilegri
þjálfun og fyrri þjálfunarhópur. Eftir
seinna þjálfunartímabilið voru mælingar
aftur endurteknar hjá báðum hópum. Þar
með lauk afskiptum rannsakenda einnig
af seinni þjálfunarhópi. Sex mánuðum
eftir að seinni þjálfunarhópur lauk sinni
þjálfun voru mælingar endurteknar í
fjórða sinn á báðum hópum. Að því
loknu lauk rannsókninni formlega en hún
stóð yfir í eitt og hálft ár.
rannsókninni og hvort hún hefði mis-
munandi áhrif á ólíka aldurshópa. Með
alþjóðlegar ráðleggingar og sjálfbærni að
leiðarljósi var einnig reynt að meta hvort
sú aðferð og íhlutun sem beitt var gæti
reynst gagnleg fyrir eldri einstaklinga til
að viðhalda eða bæta eigin heilsu til
lengri tíma.
Þátttakendur og fjölþætt þjálfun
Þátttakendum í rannsókninni voru 117 og
var þeim skipt af handahófi í tvo hópa,
fyrri þjálfunarhóp (56 þátttakendur) og
seinni þjálfunarhóp (61 þátttakandi). Að
loknum grunnmælingum og skiptingu í
þessa tvo hópa stóð þjálfunar- og rann-
sóknartími yfir á þremur sex mánaða
tímabilum. Fyrri þjálfunarhópur tók þátt
í 6 mánaða fjölþættri þjálfun auk þess
sem hann fékk næringar- og heilsuráð-
gjöf. Seinni þjálfunarhópurinn virkaði
sem viðmiðunarhópur í 6 mánuði. Eftir 6
mánaða fjölþátta þjálfun hjá fyrri þjálf-
unarhópi og biðtíma hjá seinni þjálfunar-
hópi voru grunnmælingar endurteknar.
Janus Friðrik Guðlaugsson er fæddur 7. október 1955.
Hann lauk doktorsnámi í íþrótta- og heilsufræðum 22. sept-
ember 2014, íþróttakennaraprófi frá Íþróttakennaraskóla Ís-
lands að Laugarvatni 1976, BS-prófi í íþróttafræðum og
stjórnun frá Kaupmannahafnarháskóla 1997 og MEd-prófi
frá Háskóla Íslands 2006. Janus starfar nú sem lektor við
íþrótta- og heilsubraut á Menntavísindasviði Háskóla Ís-
lands. Meðal kennslugreina eru aðferðafræði rannsókna, al-
menn og sérhæf kennslufræði íþrótta, íþróttaþjálfun, vett-
vangsnám á sviði íþróttakennslu og þjálfunar, þjálfun eldri
aldurshópa og knattspyrnuþjálfun.
Janus starfaði sem námstjóri í íþróttum við menntamála-
ráðuneytið 1986–1996 og sem faglegur umsjónarmaður við
námskrágerð 1997–2000. Janus hefur auk þess sinnt kennslu
í grunn- og framhaldsskólum. Við Lækjarskóla í Hafnarfirði
1977–1979, stundakennslu við Álftanesskóla og kennslu við
Iðnskólann í Hafnarfirði 1999–2005 auk kennslu við Íþrótta-
kennaraskóla Íslands 1976–1977. Janus starfaði um árabil
sem stundakennari við Kennaraháskóla Íslands og starfar
sem námskeiðskennari fyrir Knattspyrnusamband Íslands
auk þess að hafa ritað bækur og greinar um efni tengt
kennslu og þjálfun.
Hann bjó í Köln í Þýskalandi og Lugano í Sviss, þar sem
hann starfaði sem atvinnumaður í knattspyrnu. Hann hefur
leikið í unglingalandsliðum í handknattleik og knattspyrnu
og einnig með A-landsliði Íslands í knattspyrnu (33 leikir)
og handknattleik (7 leikir). Eiginkona Janusar er Sigrún
Edda Knútsdóttir framhaldsskólakennari. Börn þeirra eru
þrjú; Lára, Daði og Andri. Janus og Sigrún eiga 5 barnabörn.
Stjörnulið Ásgeirs Sigurvinssonar sem lék afmælisleik gegn Val sumarið 1981, í tilefni 70 ára afmælis félagsins. Aftari röð frá
vinstri: Ásgeir Sigurvinsson, Halldór Einarsson, James Bett, J. Dardean, Z. Clueso, Magnús Bergs, Teitur Þórðarson, Atli
Eðvaldsson, Albert Guðmundsson og Baldvin Jónsson. Fremri röð frá vinstri: Sigurður Dagsson, Janus Guðlaugsson, B.
Hellman, Simon Tahamata, Arnór Guðjohnsen, Ólafur Sigurvinsson, Karl Þórðarson og T. Claesen.