Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2005, Blaðsíða 42
er í samræmi við gagnrýni Tarkovskys sjálfs á efnis- og tæknihyggjuna og þau
átök milli hins andlega og efnislega sem gjaman birtast í myndum hans.16
Fjórir meginþræðir
Málverk Leonardos da Vinci af vitringunum þremur hylla Jesúbamið er í
bakgrunni upphafs Fórnarinnar. Upphafsstafír myndarinnar birtast með
þann hluta verksins í bakgrunni sem sýnir einn vitringanna færa Jesúbarn-
inu gjöf. Síðan færist myndavélin upp eftir myndinni frá Jesúbarninu að
lífsins tré og upp eftir því, en rætur þess eru rétt við höfuð Maríu og Jesú-
bamsins. A meðan hljómar arían úr Mattesuarpassíu Jóhanns Sebeatíans
Bachs, Erbarme Dich, Gott, og hún rennur síðan saman við öldugjálfur og
fuglakvak og atriðið þar sem Alexander og sonur hans em að gróðursetja
visnaða tréð hefst. Sama aría hljómar í lok myndarinnar þegar myndavélin
færir sig upp eftir visnaða trénu og drengurinn er nýbúinn að vökva það.
Ljósbrigði sólarinnar í greinum trésins gefa í skyn að tréð geti lifnað og
blómstrað. Fórnin er þannig römmuð inn með myndinni af lífsins tré og
miskunnarbæninni úr Matteusarpassíunni. Auk þess koma upphafsorð
Jóhannesarguðspjalls við sögu í byrjun og niðurlagi myndarinnar. Eftir sam-
talið við Ottó í upphafi myndarinnar segir Alexander við son sinn: „í upp-
hafi var orðið... en þú ert mállaus eins og murta.“ í lok myndarinnar liggur
drengurinn undir trénu eftir að hafa vökvað það og mælir þá í fyrsta sinn
eftir hálsaðgerðina: „í upphafi var orðið... Hvers vegna er það, pabbi?“ Þá
er ekki hægt að horfa framhjá tilvísun í rússnesku hefðina um hinn heilaga
dára. í upphafi myndarinnar fær Alexander heillaóskaskeyti í tilefni afmæl-
isins frá fyrrverandi samverkafólki í leikhúsinu undirritað af „richardins and
idiotists“. Þar er vísað til þess að Alexander hafði bæði leikið Ríkharð III í
verki Shakespeares og Myshkin fursta í skáldverki Dostojevskys, Fávit-
anum. Það er vísunin í Fávitan sem er áhugaverð í þessu sambandi og sú
staðreynd að Fórninni lýkur með því að Alexander er fluttur á brott í sjúkra-
bíl eins og hver annar fáráðlingur eftir að hann hefur brennt hús sitt og eigur.
Þegar glímt er við að túlka Fórnina er útilokað að taka ekki mið af þessum
fjórum þáttum sem mynda mikilvæga þræði í margræðum vef myndarinnar.
Leonardo
Augljóst er að málverk Leonardos da Vinci (1452-1519) af vitringunum
þremur gegnir veigamiklu hlutverki í myndinni, enda hafa margir gengið út
16 Tarkovsky, 1986, s. 218; Epelboin, 1986.
17 Green, 1987.