Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2005, Síða 48
Auk þessarar myndar og krossins yfir rúmi Maríu er Maríuíkon á veggnum
og róðukross á borði í híbýlum Maríu. Athygli vekur að Alexander og María
birtast fyrst í spegli á bak við krossinn þegar þau koma inn í herbergi hennar
og vísar það til þess að samband þeirra verði nokkurs konar hliðstæða við
fórn Krists á krossinum. Þá minnir klæðnaður Maríu óneitanlega á hefð-
bundna framsetningu á Maríu guðsmóður. Að auki má benda á að eggið sem
sést á borði þegar Alexander fer út úr húsinu á fund Maríu og sauðféð fyrir
utan hús hennar tengja hana ennfremur við kristið táknmál. Tarkovsky talar
líka um Maríu sem eina af þeim persónum myndarinnar sem líta megi á sem
útvalda af Guði.31
Hér má bæta við að kórinn sem sunginn er í Matteusarpassíunni á eftir
aríunni með miskunnarbæninni fjallar um það að þrátt fyrir afneitun á Guði
sé enn á ný unnt að snúa aftur til hans, á grundvelli þess að Guðs sonur hefur
friðþægt fyrir misgjörðir með þjáningu sinni og dauða. Fórn Krists bjargar
mannkyni og opnar því á ný leið til Guðs. Fóm Alexanders bjargar mann-
kyni undan tortímingu kjarnorkustríðs og opnar leið til nýs lífs og andlegrar
endurnýjunar og verður því nokkurs konar allegoría um fóm Krists en um
leið ákall til mannkyns um að snúa af leið hroka og efnishyggju til end-
umýjaðrar trúar á Guð.
Jóhannes
Upphafsorðin í Jóhannesarguðspjalli eru þriðji meginþráðurinn í mynd Tar-
kovskys sem vert er að hafa í huga við túlkun hennar. Hér er á ferð „jóla-
guðspjall“ Jóhannesar sem segir: „í upphafi var Orðið, og Orðið var hjá
Guði, og Orðið var Guð. Hann var í upphafi hjá Guði. Allir hlutir urðu fyrir
hann, án hans varð ekki neitt, sem til er. í honum var líf, og lífið var ljós
mannanna. Ljósið skín í myrkrinu, og myrkrið tók ekki á móti því“ (Jh 1.1-
5). Samhengið við málverk da Vincis verður augljóst þegar 14. versinu er
bætt við: „Og Orðið varð hold, hann bjó með oss fullur náðar og sannleika,
og vér sáum dýrð hans, dýrð, sem sonurinn eini á frá föðumum.“ Jesúbarnið
í fangi Maríu opinberar dýrð Guðs á meðal manna, skín eins og ljós í
myrkri, en myrkrið tekur ekki á móti því. Hér takast því á kraftar ljóss og
myrkurs, kraftur sköpunarorðs Guðs og eyðileggjandi máttur kaos-aflanna.
Málverk da Vincis endurspeglar þetta vel í því hvernig friðsældin og kyrrðin
yfir Maríu og Jesúbarninu er umkringd af óróleika hringiðunnar. í upphafs-
orðum Jóhannesarguðspjalls birtist þetta í orðunum „ljósið skín í myrkrinu,
og myrkrið tók ekki á móti því.“ Þetta bendir svo til þeirrar óreiðu og ógnar
31 Tarkovsky, 1986, s. 227.
46