Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.2005, Blaðsíða 58
móti sprottinn upp úr trúar- og bænalífi fjöldans.2 Einstakir sálmar eru
orðnir til á mismunandi tímabilum, spanna trúlega a.m.k. 500 ár, og eru að
líkindum 2500 til 3000 ára gamlir.3 Þeir hafa smám saman öðlast þann sess
að verða bæna- og sálmabók þjóðar og síðar verið teknir yfír af kristninni
og breiðst út um veröld víða og haft ómæld áhrif, ekki síður hér á landi en
annars staðar í hinum gyðing-kristna menningarheimi.4
Við skulum ekki gleyma því að Saltarinn var bænabók Jesú Krists, hann
vitnaði í þá á krossinum (Mt 27:46, Mk 15:34, sbr. S1 22:2) og andlátsorð
hans eru meira að segja sótt í þá (Lk 23:46, sbr. S1 31:6). í Nýja testament-
inu er ekki vitnað jafn oft í neitt rita Gamla testamentisins og Davíðssálma.5
Davíðssálmar eru sálmar fjöldans og jafnvel sá sem biður með orðum
þeirra í einrúmi hann biður í raun og veru í samfélagi.
Kvæðið „Davíð konungur“ eftir Einar Benediktsson hefst á orðnum
„Um aldur beygir heimurinn hné/ við hjarðkóngsins voldugu ymna.“6 í
því orðalagi kemur ekki aðeins fram sú gamalgróna skoðun að sálmarnir
eigi rætur að rekja til Davíðs konungs, 7 ,,útvald[a] söngvar[a] Saltarans“,
eins og Einar nefnir hann, heldur minnir kvæðið ekki síður á þær miklu vin-
sældir sem sálmamir hafa notið um aldir og að þeir hafa verið notaðir sem
bænasálmar.
Harmasálmar
Það er athyglisvert hversu stór hluti sálmanna, um þriðjungur þeirra, eru
harmasálmar eða bænasálmar.8 Einhver sagði þessa staðreynd vera til
marks um að manneskjunni væri tamara og eðlislægara að biðja en þakka.
Raunar er erfítt að draga upp sterka andstæðu þarna á milli því að við
skoðun harmasálmanna kemur á daginn að flestir þeirra lýsa aðeins að
2 Á þetta atriði lagði Hermann Gunkel (1862-1932) megináherslu. Gunkel var brauðryðjandi í rannsókn
Saltarans á 20. öld. Hann er upphafsmaður hinna formsögulega rannsókna í gamlatestamentisfræðum og
leitaðist við að flokka sálmana í ljósi notkunar þeirra í trúarlífinu og hvemig sú notkun héldist í hendur
við form þeirra og innihald. Áhersla hans á notkun sálmanna í líftnu og þá einkum helgihaldinu leiddi til
þess að hið þýska orðalag hans ‘Sitz im Leben’ er þekkt af öllum guðfræðinemum enda kennt í öllum
bókum um inngangsfræði Gamla testamentisins.
3 Vissulega er talsverður ágreiningur meðal fræðimanna um aldur einstakra sálma en flestir telja að umtals-
verður hluti sálmanna sé til orðinn frá tímanum fyrir babýlónsku útlegðina (586-538 f.Kr.)
4 Um áhrif Saltarans hefur til þess best og ítarlegast verið fjallað af R.E. Prothero 1903 og W.L. Holladay
1993.
5 Sjá ágæta grein Tryggve Kronholm um notkun Saltarans í Nýja testamentinu. Kronholm 1995, s. 57-83.
6 Einar Benediktsson 1964, s. 553.
7 Nútíma biblíuvísindi mega raunar heita einróma í því að hafna þessari gamalgrónu skoðun.
8 Bandaríski gamlatestamentisfræðingur Walter Brueggemann hefur lagt mikla áherslu á þýðingu og mikil-
vægi harmasálmanna fyrir trúarlíf einstaklinga og safnaða. Þessi áhersla hans kemur vel í ljós í hinu mikla
riti hans um guðfræði Gamla testamentisins (1997).
56