Skagfirðingabók - 01.01.1985, Blaðsíða 28
SKAGFIRÐINGABÓK
Árni og Jón enn um styrk til sýslunefndar með bréfi. Innihald
þess veitir góðar upplýsingar:
Við undirritaðir stofnendur unglingaskólans í Vík í Skaga-
firði leyfum oss hérmeð að fara þess á leit við hina
háttvirtu sýslunefnd að henni mætti þóknast að veita oss
kr. 300.00, þrjú hundruð krónur, á yfirstandandi ári, og
skal það jafnframt tekið fram að þessi styrkveiting er
skilyrðið fyrir því að við getum orðið nokkurs styrks
aðnjótandi úr landssjóði (samanber fjárlögin).
Nemendur eru 12 og skift í tvær deildir, í annarri
deildinni eru nokkrir af þeim er nutu kennslu á skólanum
síðastliðinn vetur, og sóttu um skólann að nýju til fram-
haldsnáms; vegna þessarar tvískiftingar hefir kennara
verið bætt við, svo nú eru þeir þrír. Það skal enn fremur
tekið fram að við höfum breytt tímafjöldanum og tíma-
tölunni sem skal varið til hverrar námsgreinar, eftir því
sem reynsla vor frá liðnu skólaári benti á að mundi
heppilegast. (Sjá meðfylgjandi skýrslu.) Af sömu ástæð-
um er ákveðið að allir nemendur skólans gangi undir próf
í lok námstímans (seint í apríl). Vér vonumst því sterklega
eftir að sýslunefnd veiti oss hinn umbeðna styrk.
Bréfinu fylgir skýrsla um starfsemina þennan vetur. Þar
kemur fram að í fyrstu deild er íslenska, munnleg og skrifleg,
kennd fjórar stundir á viku, saga (mannkyns- og Islandssaga) 6
stundir, náttúrufræði (eðlisfr., grasafr., mannfr., efnafr., jarðfr.)
7 stundir, landafræði 5 stundir, reikningur 5 stundir og danska
þrjár stundir, samtals 30 stundir. I annarri deild er sami stunda-
fjöldi og námsgreinar, „en fullkomnari bækur notaðar við
kennsluna."
I sýslufundargerð frá 7. mars kemur þessi afstaða gagnvart
skólanum fram:
Jafnvel þó téður skóli sé ekki nú í vetur svo fjölsóttur,
sem búist var við í fyrra, þegar byrjað var á að styrkja
hann úr sýslusjóði, þykir rétt að veita honum í þetta sinn
26