Skagfirðingabók - 01.01.1985, Page 195
Bátanaust á Reykjum, Drangey og Kerling t. v. og Málmey að hluta; t. h.
Hegranes og Austurfjöll fjœr. Ljósm.: PállJónsson.
verið svo samrýmd í æsku, að þau gátu tæpast hvort af öðru
séð. A seinni árum varð henni tíðum blandað saman nöfnum
þeirra Bjarna og Gísla sonar síns, bróður míns. Oft ætlaði hún
t. d. að fara að þvo sokkana hans Bjarna, meinti þá Gísla sokka,
eða spurði eftir Bjarna, þegar það átti að vera Gísli. Það kom
líka jafn ósjaldan fyrir, þegar hún var að segja frá æsku sinni, að
hún nefndi Bjarna Gísla: „Einu sinni, þegar við vorum krakkar,
gerðum við Gísli“ það og það, sem hún tiltók, áttaði sig svo og
sagði: „Alltaf blandast þeir tveir saman í huga mínum.“
Bjarni fór mjög nauðugur til Ameríku, en um það vissi móðir
mín ekki til fulls fyrr en hann var farinn af landi brott, og var þó
víst söknuður hennar að sjá honum á bak eitt með því þyngra,
sem henni mætti. Þetta var á hörðu árunum fyrir 1890, það var
fleiri ára harðindatímabil bæði til lands og sjávar. Þá streymdi
fólkið til Ameríku. Bjarni bjó úti á Reykjaströnd áður en hann
fluttist vestur.1 Kona hans var Kristín Þorleifsdóttir frá
1 Bjarni fór vestur árið 1888.
193